Bandaríski kylfingurinn Dustin Johnson var í gær dæmdur í sex mánaða keppnisbann vegna eiturlyfjaneyslu.
Greindist Dustin með kókaín í blóðinu á dögunum en það er ekki í fyrsta sinn sem hann greinist með ólögleg efni í blóðinu.
Dustin hefur samkvæmt heimildum bandarísku golfsíðunnar Golf.com tvisvar verið gripinn með ólögleg efni í blóðinu. Greindist hann með maríjúana í blóðinu árið 2009 og kókaín árið 2012.
Dustin, sem er einn högglengsti kylfingurinn á PGA-mótaröðinni, gaf frá sér yfirlýsingu í gær þess efnis að hann ætlaði að taka sér óvænt frí frá golfi næstu mánuðina.
Dustin hefur átt góðu gengi að fagna á PGA-mótaröðinni á þessu ári en heildarvinningar hans á þessu ári eru rúmlega 4,2 milljónir Bandaríkjadala.
Var talið nokkuð víst að hann yrði hluti af Ryder-Cup liði Bandaríkjanna í ár en hann mun nú missa af mótinu sem þykir hápunktur golftímabilsins ásamt því að missa af PGA-meistaramótinu sem fer fram í ágúst.
