Handbolti

Stuðningsmenn ÍBV komu þjálfaranum til að gráta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Ásvöllum skrifar
Stuðningsmenn Eyjamanna voru magnaðir.
Stuðningsmenn Eyjamanna voru magnaðir. Vísir/Stefán
Arnar Pétursson varð klökkur í viðtali við Vísi eftir að ÍBV tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í fyrsta sinn í sögu félagsins í kvöld.

ÍBV vann Hauka í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn en Eyjamenn hafa fengið ótrúlegan stuðining íbúa Vestmannaeyja í úrslitakeppninni.

„Sérðu þetta? Ég fer bara að gráta þegar ég horfi á þennan hóp,“ sagði Arnar og þerraði tárin. „Það er ótrúleg vinna að baki og þetta fólk á þetta svo innilega skilið. Það er ómetanlegt að fá svona stuðning.“

Hér fyrir neðan má lesa nánari umfjöllun um leikinn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×