Aðalmeðferð í málinu var frestað þann 8. apríl á meðan beðið var niðurstöðu Hæstaréttar er varðaði tvö fyrrnefnd atriði. Héraðsdómur hafði áður hafnað kröfur sérstaks saksóknara um að fá að taka skýrslu af fleiri vitnum.
Dómari í Aurum málinu hefur úrskurðað að heimilt sé að taka símaskýrslu af tveimur vitnum, Nikhil Sengupta og Tawhid Abdullah, sem búsettir eru í Dubai og eru fyrirsvarsmenn félagsins Damas. Þá var kröfu sérstaks saksóknara um að fá að taka skýrslu af fleiri vitnum, hafnað. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, hafði krafist þess að fyrrverandi stjórnendur Glitnis bæru ekki vitni í málinu.
Stjórnarmennirnir fyrrverandi eru auk Bjarna Ármannssonar þeir Einar Sveinsson, Skarphéðinn B. Steinarsson, Þorsteinn M. Jónsson, Katrín Pétursdóttir, Haukur Guðjónsson og Pétur Guðmundsson.
Mennirnir tveir sem munu bera vitni símleiðis, Nikhil Sengupta og Tawhid Abdullah, eru búsettir í Dubai. Þeir eru fyrirsvarsmenn skartgripafyrirtækisins Damas sem hafði áhuga á að kaupa hlut í Aurum Holding. Vitnin sögðust fús til að bera vitni símleiðis en samkvæmt upplýsingum ákæruvaldsins hafa þau bæði reynst ófáanleg til að koma til landsins til að vitna fyrir dómnum.

Í Aurum Holding-málinu eru þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson, sem báðir voru starfsmenn Glitnis, ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd.
Fjórmenningarnir neita allir sök í málinu.