Opið bréf til afskiptalausra feðra Hlédís Sveinsdóttir skrifar 22. apríl 2014 12:15 Kæru afskiptalausu feður, verandi eða verðandi. Þetta bréf er til ykkar. Frá móður sem í þrjú ár hefur reynt að setja sig í ykkar spor. Með þessum árangri: Stundi fólk á annað borð samlíf getur það átt „á hættu“ að úr verði barn. Undrasmíðin, sjálft barnið, kærir sig kollótt um forsendur foreldra. Okfrumunum er nákvæmlega sama hvort foreldrar þeirra séu allsgáðir eða ölóðir, gift hvort öðru eða öðrum, unglingar eða öldruð, varið eða óvarið. Það er aðeins ein 100% örugg leið treysti maður sér alls ekki til að axla þá ábyrgð sem athöfninni getur fylgt. Sú leið kallast skírlífi. Þetta ættu ekki að vera ný fræði fyrir neinn en vert og jafnvel þarft er að minna unga sem aldna karlmenn á það. Það eru jú þeir sem ekki hafa val eftir að sáð- og eggfruma þróa með sér vinskap. Það er eitthvað sem karlmenn þurfa að gera sér grein fyrir í upphafi og alltaf. Valið þeirra er nefnilega algjörlega bundið við upphafið. Það hallar því miður á feður varðandi forræði og lögheimili barna. Kerfið virðist líka vera ráðalaust þegar feður eru beittir tálmunum á umgengni. Þetta veit ég og það tekur mig sárt. Það tekur mig líka sárt að karlmenn sem vilja halda fóstri þegar kvenmaðurinn vill það ekki, hafa ekkert um það að segja. Það er ósanngjarnt og hlýtur að vera mjög erfitt. En svona eru forsendurnar og því miður engin betri lausn til, jafnvel þótt bæði kynin myndu vilja skipta. Kynin standa heldur ekki jöfn þegar kvenmaður vill halda fóstri en karlmaðurinn ekki. Það hlýtur að vera auðveldara að sætta sig við að eignast barn sem ekki var ráðgert heldur en hitt. Það getur jú margt verra sem getur komið fyrir fólk en að eignast óvart barn. Óvænt þungun er ekki bara erfið upplifun fyrir föðurinn, þar tala ég af reynslu. Ég minnist þess að hafa gengið í gegnum öll stig áfalls. Fyrst fann ég fyrir ofsareiði gagnvart manninum sem barnaði mig, þó ég telji mig vita að það hafi ekki verið af ásettu ráði og ábyrgð okkar beggja jöfn. Síðan tók við hræðsla og afneitun þar sem ég gat ekki horfst í augun við staðreyndir. Þá sorg yfir forsendum þungunarinnar og loks sátt við það sem ekki fæst breytt. Það er ekkert samhengi á milli þess að hafa ekki ætlað sér að verða foreldri og að elska ekki barnið sitt. Það þekki ég. Ég veit hvernig það er að eiga barn með manneskju sem mig langar ekki að eiga barn með, á erfiðum forsendum og á vægast sagt óheppilegum tímapunkti. Á aðeins nokkrum mánuðum er hægt að fara úr því að gráta angistarfullt yfir því að eiga von á barni, yfir í að gráta hugsanlegt hártog á leikskóla. Sem betur fer er ást flestra foreldra náttúruafl, eitthvað sem er öllu öðru yfirsterkara og gefur skít í allar forsendur. Það skiptir ekki máli hver á barnið með manni eða hvort tímasetningin sé góð eða slæm. Manns eigin hagsmunir víkja umsvifalaust fyrir þeirra. Ást í sinni fegurstu mynd, hrein og óskilyrt. Ekkert barn ætti að þurfa að upplifa höfnun því að ekkert barn hefur til hennar unnið og ekkert barn ætti að líða fyrir forsendur foreldra sinna. Samsetning fjölskyldna er svo fjölbreytileg og tek ég hatt minn ofan fyrir öllum þeim frábæru foreldrum sem láta allskonar forsendur og fyrirkomulag ganga upp með hagsmuni barna að leiðarljósi. Ég dæmi fólk ekki út frá trú, kyni eða klæðnaði. Mér er hinsvegar ekki sama hvernig það kemur fram við börn. Það er heilög skylda hverrar manneskju að koma vel fram við börn – sín eigin og annara. Samt eru margir karlmenn sem ekki sinna því að vera feður barnanna sinna. Finnst þeim kannski ábyrgðin alfarið kvenna því það eru þær sem verða ófrískar og þær hafa „val“ um fóstureyðingu? Sjá þeir ekki heildarmyndina, eru reiðir barnsmæðrum sínum og telja þær einar bera ábyrgð á getnaði? Eða þetta klassíska að konurnar ætluðu svo greinilega (eftirá) að eiga með þeim barn? Eða eru þeir bara að eilífu amen fastir á fyrsta stigi áfalls? Þessar hugleiðingar eru ekki skrifaðar í reiði. Reiðin gagnvart þunguninni er löngu farin og þakklæti komið þess í stað. Ég er þakklát lífinu fyrir að fá að vera móðir þessa dásamlega barns sem dóttir mín er og ekki vildi ég hafa eitt hár á höfði hennar öðruvísi. Lífið vinnur svo fallega ef maður leyfir því. Ég elska hana fyrir það sem hún var, er og verður – alltaf! Eftir stendur þó reiðin gagnvart framkomu í hennar garð, enda ætti engu foreldri að vera sama ef illa er komið fram við barn þess. Ég veit í gegnum hvað ég hef gengið með dóttur minni þegar lífi hennar og limum var ógnað í fæðingu, vanmátturinn og óttinn um hennar lífsgæði og hamingju, kvíðinn fyrir því að fá vondar fréttir úr skoðunum og síðast en ekki síst allar andvökunæturnar og almennar áhyggjur sem felast í ábyrgð einstæðra foreldra. En aldrei myndi ég vilja skipta. Ég er sú heppna að fá ást stelpunnar minnar endurgoldna, deila með henni sorgum, sigrum og öllu þar á milli. Ég get ekki ímyndað mér þá sálarangist sem heilbrigðir menn líða sem ekki finnast þeir hafi rými til að elska barnið sitt! Þar hafa þeir alla mína samúð, jafnvel þó vítið sé sjálfskapað. Ósk mín er að þessar hugleiðingar hreyfi ekki bara við afskiptalausum feðrum heldur samfélaginu í heild. Við þurfum að gera okkur grein fyrir ójafnri stöðu kynja þegar kemur að óvæntri þungun. Ræða þetta opinskátt, fræða unga drengi og aðstoða feður við að takast á við slíkar aðstæður þannig að best sé fyrir þá sjálfa og börnin þeirra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hlédís Sveinsdóttir Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun