Úrslitakeppni Dominos-deildar kvenna í körfubolta heldur áfram í kvöld þegar leikur tvö fer fram í báðum undanúrslitaeinvígunum.
Snæfell og Haukar eru bæði 1-0 yfir eftir sigur á heimavelli á laugardaginn en í kvöld fá Keflavík og Valur hinsvegar heimaleik.
Leikur Vals og Snæfells í Vodafonehöllinni verður í beinni á Stöð 2 Sport en hann hefst klukkan 19.15. Þetta verður fyrsti leikurinn sem er sýndur beint frá úrslitakeppni kvenna í nokkur ár. Á sama tíma spila Keflavík og Haukar í TM-höllinni í Keflavík.
Snæfell er búið að vinna alla sex leiki sína á móti Val í vetur en varð fyrir áföllum í leik eitt í Stykkishólmi þegar tveir leikmenn liðsins meiddust þar á meðal bandaríski bakvörðurinn Chynna Unique Brown.
Haukarnir hafa unnið fimm síðustu leiki sína á móti Keflavík þar á meðal undanúrslitaleik liðanna í bikarnum sem fram fór í Keflavík á dögunum.
