Sigtryggur prófar djassinn Freyr Bjarnason skrifar 22. október 2013 09:45 Karl Olgeirsson, Ásgeir Ásgeirsson og Sigtryggur Baldursson spila á Kexi Hosteli í kvöld. fréttablaðið/valli „
Þetta verður ekki „normal“ djasstrommuleikur en ég skrölti mér fram úr þessu einhvern veginn,“ segir Sigtryggur Baldursson. Þrátt fyrir áratugalangan feril spilar hann í fyrsta sinn djass á tónleikum Karls Orgeltríós á Kexi Hosteli í kvöld. Karl Olgeirsson stofnaði tríóið í kringum Hammond-orgelið sitt sem er 55 ára gamalt. Sigtryggur hlakkar mikið til að spreyta sig á djassinum í fyrsta sinn. „Bogomil [Font] er búinn að raula djass lengi en ég hef aldrei spilað djass á trommusett. Ég hef verið að spila alls konar hluti en aldrei djass enda hef ég aldrei gefið mig út fyrir að vera djasstrommari,“ segir Sigtryggur, sem er líklega þekktastur fyrir spilamennsku sína með Sykurmolunum. „Mínar rætur lágu annars staðar. Ég hef aldrei þorað í þennan pytt en Kalli vildi að ég gerði þetta með mínu nefi, þannig að ég ætla að láta slag standa og gera það. Aðalmálið er samt að við höfum mjög gaman af þessu. Kalli ætlar að syngja seinni hlutann af tónleikunum en mér finnst hann gimsteinn sem söngvari, fyrir utan það að vera frábær organisti.“
Mest lesið Stjörnulífið: „Einhver þarna uppi heldur með mér“ Lífið Steindi á æfingu hjá versta fótboltaliði Lundúna Lífið Einhleypan: „Borða, ríða, elska“ Makamál Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Tónlist Frægir flugfreyjubúningar í útgáfuhófi Loftleiðabókar Lífið Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Tónlist Fiskikóngurinn kominn í gufuna Lífið Sjá eftir að hafa beint börnum á klámsíðu Lífið Viðkvæmur drengur sem var á brjósti til fimm ára aldurs og farinn að reykja Lífið Hlýleg hönnunarperla eftir Rut Kára í Mosó Lífið Fleiri fréttir Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira