Tungl fær ekki að heita Vúlkan 3. júlí 2013 11:13 Leonard Nimoy, sem lék Vúlkanann Spock á fyrstu árum Star Trek, var áhugasamur um að tunglið fengi nafnið Vúlkan.
Alþjóðasamband stjarnfræðinga (IAU) hefur ákveðið að annað af tveimur tunglum sem nýlega fundust á sporbraut um Plútó fái ekki að bera nafnið Vúlkan þrátt fyrir að nafnið hafi hlotið flest atkvæði í atkvæðagreiðslu meðal almennings. Efnt var til atkvæðagreiðslu þegar tunglin tvö uppgötvuðust. Vúlkan fékk langflest atkvæði, væntanlega vegna þess að nafnið tengist Star Trek sjónvarpsþáttunum og bíómyndunum þar sem Vúlkan er heimapláneta Vúlkana eins og hins fræga Spock. IAU valdi nöfnin sem enduðu í öðru og þriðja sæti, Kerberos og Styx, en þrjú tungl Plútó höfðu áður fengið nöfn úr goðafræði. Stjórnendur IAU nefna tvær ástæður fyrir því að nafninu Vúlkan var hafnað í fréttatilkynningu. Í fyrsta lagi segja þeir nafnið Vúlkan hafa verið notað áður, yfir meinta plánetu sem menn hafi talið sig hafa fundið milli Merkúrs og Sólarinnar. Síðar kom í ljós að plánetan var ekki til, en nafnið hefur áfram verið tengt við loftsteina sem eru á sporbraut um sólu innan við sporbraut Merkúrs. Hin ástæðan sem nefnd hefur verið er að Vúlkan passi ekki inn í sama þema og nöfn þeirra þriggja tungla sem þekkt voru áður en fjórða og fimmta tunglið fundust. Nöfn þeirra tengjast öll eftirlífinu á einhvern hátt. Tunglin þrjú sem áður höfðu fengið nafn heita Nyx, Hydra og Charon.
Plútó Geimurinn Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Sjá meira