

Auður er lítils virði ef hann er ekki nýttur skynsamlega!
Náttúruauðlindirnar er mikilvægt að nýta en um leið án þess að valda óafturkræfum spjöllum þannig að þær gagnist einnig komandi kynslóðum. Á sama hátt er mikilvægt að koma í veg fyrir stöðnun og landflótta því án mannauðsins má landið sín lítils. Þegar að kreppir eins og núna ríður á að forgangsraða þannig að auður Íslands hjálpi okkur yfir erfiðasta hjallann og skili okkur á endanum viðunandi lífsskilyrðum.
Samanburður við frændþjóðir okkar sýna að við höfum dregist hressilega aftur úr hvað varðar lífskjör og við verðum að finna leiðir til að stöðva þá þróun svo ungt fólk sjái ástæðu til að búa hér. Það er óásættanlegt að búa við tvöfalt verð á húsnæði og mun hærra matvælaverð en þekkist í nágrannalöndunum.
Með allar okkar náttúruauðlindir og mannauð erum við í þessari stöðu sem segir okkur að við höfum ekki haldið rétt á spilunum. Mistök fyrri ráðamanna eiga að vera námskrá dagsins í dag. Við viljum nefnilega ekki alltaf velja íslenskt, hver vill íslenskt vaxtastig, íslenskar efnashagssveiflur og hverjir vilja áfram notast við íslenskar skammtímalausnir? Verðugir fulltrúar fólksins taka þjóðarhag fram yfir einkahagsmuni, það er hið eiginlega lýðræði sem þjóðin á skilið.
Aukin aðkoma íbúa
Við frambjóðendur Lýðræðisvaktarinnar viljum bæta íslenskt samfélag og um leið íslensk stjórnmál. Forsenda þess að íslenskt samfélag fái notið sín er einfaldlega sú að að farið sé að vilja almennings. Svikin kosningaloforð eru samofin þeirri vanvirðingu lýðræðisins sem við búum við. Nú er lag að hverfa frá stjórnkerfi þar sem sérþarfir valdamikilla þrönghagsmunahópa eru teknar fram yfir hagsmuni hins almenna borgara. Það getum við gert með aukinni aðkomu íbúanna að ákvarðanatökum í þeim málum sem skipta þjóðina og framtíð hennar mestu. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru gott verkfæri í slíkri vegferð.
Náttúra landsins, allt frá nytjafiskum, loft- og vatnsgæðum til okkar fjölbreytta og fallega lands, er bankainnistæða landsmanna, auður sem nota þarf á sjálfbæran og skynsaman máta. Á sama hátt þarf að skapa starfsskilyrði þannig að mannauður þjóðarinnar nýtist og viðhaldist. Það gerum við með því að styrkja atvinnugreinar sem geta leyst af hólmi stóriðjustefnuna sem er gengin sér til húðar. Mikil sóknarfæri liggja í uppbyggingu á þekkingariðnaði og nýsköpun sem tengist sjávarútvegi, landbúnaði og ferðaþjónustu. Vonandi ber okkur gæfa til að nýta það sem okkur er gefið og leiðin að því marki felst í skynsamlegum langtímalausnum.
Skoðun

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar