
Raunverulegir hagsmunir heimilanna
Í raun er það sorglegt að skuldamál heimilanna séu efst í hugum svona margra og þykja skipta svona miklu máli. Ekki er það af því að skuldarar eiga að éta það sem úti frýs – þvert á móti. Það má kannski breyta lögum, draga úr notkun verðtryggingar og skoða einhver frekari úrræði en núverandi ríkisstjórn hefur boðið. Vandinn er samt einfaldlega sá, fyrir utan mikla skuldsetningu, að fólk hefur minni kaupmátt til að greiða af húsnæðislánum sínum. Enn fremur hafa margir misst vinnuna, skattar hafa hækkað og svo framvegis. Það hafa svo sannarlega komið verðbólguskot síðan verðtryggingunni var komið á árið 1979, án þess að það hafi valdið skuldurum vanda til lengri tíma, þar sem lífskjör og kaupmáttur hafa yfirleitt batnað á sama tíma. Ástæðan fyrir því að fólk finnur fyrir þessu nú er að neysla og fjárfesting á Íslandi er ekki lengur fjármögnuð með miklum viðskiptahalla (lánum frá útlöndum) og við framleiðum minna af vörum og þjónustu. Það er reyndar heillaspor að búið sé að snúa viðskiptahallanum við, en til þess að neyta og fjárfesta þarf að framleiða. Við erum enn þá í kreppu og fleiri en skuldarar finna fyrir því.
Þegar upp er staðið er forsenda hærri kaupmáttar, hagsældar og öflugs velferðarkerfis, geta hagkerfisins til að framleiða vörur og þjónustu á hagkvæman hátt. Þetta er getan til að skapa verðmæti úr fjármagni, auðlindum og mannauði, getan til að flytja út verðmæti til annarra landa, getan til að skapa eitthvað og versla við hvert annað.
Eitt er á kristaltæru – 300 milljarða eignatilfærslan sem fær alla athyglina er ekki forsenda hagsældar. Það er nákvæmlega þetta sem er sorglegt. Slík aðgerð er líklegri til að hafa neikvæð áhrif á hagkerfið í heild sinni því þá væri búið að gefa fordæmi fyrir skuldaniðurfellingum, sem getur bara verið hvatning til frekari skuldsetningar og áhættu í framtíðinni. Einnig gæti slík aðgerð verið verðbólguhvetjandi ef ekki er rétt að farið.
En hvað er þá hægt að gera til að skapa raunverulega hagsæld og bæta lífskjör? Þar spilar margt inn í. Til dæmis er nauðsynlegt að fyrirtæki búi við stöðugt og gott viðskiptaumhverfi sem hvetur til verðmætasköpunar. Hvernig ætla flokkarnir að stuðla að því? Einnig er mikilvægt að þjóðin sé vel menntuð – menntamál hafa verið gjörsamlega týnd í umræðunni. Reynslan frá góðærinu og hruninu kennir okkur líka að það hlýtur að vera hægt að bæta peningamálastjórn, hvort sem það er með öðrum gjaldmiðli eða ekki. Þessi málefni eiga það sameiginlegt ásamt öðrum að vera gríðarleg hagsmunamál fyrir alla Íslendinga, ekki bara þá sem skulda mikið verðtryggt.
Í ljósi þessa væri óskandi að íslenskir kjósendur og stjórnmálamenn myndu setja önnur mál í forgang. Helst málefni sem raunverulega hafa áhrif á hagsæld til lengri tíma, auk alls annars sem hefur áhrif á samfélagið. Það er stuttur tími til stefnu, en vonandi nægur til að hífa umræðuna á hærra plan heldur en að láta hana snúast um eignatilfærslu og draumóra um fjármuni sem eru ekki í hendi. Málefni eins og viðskiptaumhverfi fyrirtækja, menntamál, peningamálastefna framtíðarinnar og afnám hafta eru miklu mikilvægari.
Skoðun

Hvað er markaðsverð á fiski?
Sverrir Haraldsson skrifar

Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda
Anna Karen Svövudóttir skrifar

Fæðing Ísraels - Líkum misþyrmt
BIrgir Dýrfjörð skrifar

Við eigum allt. Af hverju finnst okkur samt vanta eitthvað?
Valentina Klaas skrifar

Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti
Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar

Tíðaheilbrigði er lykilatriði í jafnrétti kynjanna
Berit Mueller skrifar

Þjóðarmorð – frá orðfræðilegu sjónarmiði
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Borgarlína, barnleysi og bíllaus lífstíll – hentar það Kópavogi?
Einar Jóhannes Guðnason skrifar

Þakkir til starfsfólk Janusar
Sigrún Ósk Bergmann skrifar

Mun gervigreindin senda konur heim?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Frá, frá, frá. Fúsa liggur á
Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Nokkur orð um stöðuna
Dögg Þrastardóttir skrifar

Kynbundinn munur í tekjum á efri árum
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

#blessmeta – þriðja grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Hvernig tryggir þú stærstu fjárfestingu lífins?
Berglind Halla Elíasdóttir skrifar

Ritunarramminn - verkfæri fyrir kennara!
Katrín Ósk Þráinsdóttir skrifar

Feluleikur Þorgerðar Katrínar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ráðalaus ráðherra
Högni Elfar Gylfason skrifar

Spólum til baka
Snævar Ingi Sveinsson skrifar

Sögulegur dómur Hæstaréttar – staðfestir sjálfstæði Alþingis
Erna Bjarnadóttir skrifar

Að vera fatlaður á Íslandi er full vinna
Birna Ösp Traustadóttir skrifar

Sæluríkið Ísland
Einar Helgason skrifar

Áskorun til Alþingis: Tryggið almannahagsmuni - afnemið samkeppnisundanþágu afurðastöðvanna
Benedikt S. Benediktsson,Breki Karlsson,Halla Gunnarsdóttir,Ólafur Stephensen skrifar

Stormurinn gegn stóðhryssunni
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Kallið þið þetta fjölbreytni?
Hermann Borgar Jakobsson skrifar

Til varnar Eyjafjöllum - og Íslandi öllu
Pétur Jónasson skrifar

Réttlætið sem refsar Jóni
Hjálmar Vilhjálmsson skrifar

Guðmundur Hrafn Arngrímsson er maður sem hefur aldrei rúllað sexum
Kristján Blöndal skrifar

Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
Katrín Matthíasdóttir skrifar