Allt þetta tal er bara öfund Henry Birgir Gunnarsson skrifar 15. apríl 2013 06:00 Teitur Örlygsson skilur ekki af hverju talað er um Stjörnuna sem eitthvað sérstaklega dýrt lið.fréttablaðið/vilhelm
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, hélt því fram í rimmu sinni við Stjörnuna í undanúrslitum Dominos-deild karla að Stjarnan væri að tefla fram dýrasta liði Íslandssögunnar. Það eru ekki einu neikvæðu ummælin sem Stjörnumenn hafa mátt þola í vetur. Því er iðulega haldið á lofti að liðið sé með fjóra útlendinga og gárungarnir hafa á stundum kallað það lið Sameinuðu þjóðanna. Hjá Stjörnunni eru tveir Íslendingar sem eru af erlendu bergi brotnir - Justin Shouse og Jovan Zdravevski - ásamt tveim Bandaríkjamönnum. „Svona ummæli peppa okkur upp frekar en annað. Um leið og menn fara í svona umræður finnst mér það vera uppgjöf og veikleikamerki,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar. „Við erum með nákvæmlega sama lið og í fyrra nema að það eru nýir útlendingar hjá okkur eins og hjá öðrum.“ Teitur segir að umræðan um ríkisfang þeirra Shouse og Zdravevski komi reglulega upp. „Hvenær ertu Íslendingur? Hann stendur í skólanum á morgnana, fer í búðina á leið heim úr vinnu og kaupir sér þorramat í flottu lopapeysunni sinni. Hann greiðir skatta til samfélagsins og borgar laun hjá fólki sem er á bótum og rífur kjaft. Svo eru til íslenskir leikmenn sem hafa varla unnið handtak og eru að fá greitt svart. Hvor þessara tveggja er meiri Íslendingur?“Mynd/VilhelmTeitur segir sitt lið eðlilega njóta góðs af því að hafa menn eins og Shouse og Zdravevski í sínu liði. „Þetta eru samt ekki fyrstu gaurarnir sem fá ríkisborgararétt. Við erum með sama lið og síðustu ár en með betri útlendinga og okkur gengur betur. Þá kemur kannski öfund. Maður heyrði þetta ekki í fyrra. Öfundin er hluti af þessu. Þegar menn tapa þá fara þeir í alls kyns pakka. Hvað eigum við að senda Justin og Jovan í önnur lið? Myndu þau segja nei við því að fá þá? Við erum lánsamir að hafa þessa menn og svona umræða fellur alltaf um sig sjálfa.“ Teitur furðar sig einnig á umræðunni um að þetta sé dýrasta lið Íslandssögunnar. „Það er þvæla að Bandaríkjamennirnir séu sérstaklega dýrir. Þeir eru ekki nálægt því að vera dýrustu Kanarnir í deildinni,“ sagði Teitur en hermt hefur verið að maður eins og Jarrid Frye væri með um 500 þúsund krónur í mánaðarlaun hjá Stjörnunni. „Ætli það sé ekki um helmingi minna. Ætli Kanarnir á Íslandi séu ekki með um 215 til 260 þúsund krónur á mánuði. Einhverjir eru kannski dýrari en þeir komu þá síðasta sumar. Þeir sem koma síðar eru þá með lausan samning og fást á minni pening,“ sagði Teitur. En hvað með Íslendingana?Teitur ræðir málin við Kristinn Óskarsson dómara.„Marvin var búinn að spila í 1. deildinni í mörg ár og það virtist enginn hafa áhuga á honum er við náðum í hann. Sá hefur heldur betur staðið sig. Fannar var orðin áttundi eða níundi maður hjá ÍR er hann kom til okkar. Hann er fyrirliði okkar og byrjunarliðsmaður. Jovan er örugglega ekki á miklum launum eftir árið í fyrra. Hann er örugglega að borga til baka. Þessi umræða er bara þvæla. Það eru engin rök fyrir þessu tali og við nýtum okkur svona umræðu til þess að þjappa okkur saman.“ Teitur er að klára sitt fjórða ár með Stjörnuliðið og það hefur styrkst með hverju ári. Er hann loksins kominn með liðið sem fer alla leið? „Þetta er örugglega sterkasta liðið sem ég hef verið með í höndunum. Ég hef ekki þurft að púsla miklu saman því þá voru Justin, Jovan og Fannar þarna en þetta eru þrír byrjunarliðsmenn. Liðið var aftur á móti búið að vinna einn leik og tapa níu er ég kem að því. Liðið var þá neðst í deildinni. Kjarninn hefur verið til staðar lengi,“ sagði Teitur og bendir á að sitt lið hafi alltaf fallið úr leik gegn sterku liði. „Síðustu þrjú ár hefur liðið sem við töpuðum gegn orðið Íslandsmeistari. Stefnan er að breyta því að þessu sinni,“ sagði Teitur en Stjarnan hefur aldrei orðið Íslandsmeistari í körfubolta.Sportið á Vísi er komið á Facebook. Fylgstu með.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Jovan öflugri en allur Snæfellsbekkurinn Jovan Zdravevski er að koma sterkur inn af bekknum hjá Stjörnunni í þessari úrslitakeppni og það hefur ekki verið nein breyting á því í undanúrslitaeinvíginu á móti Snæfelli. Jovan Zdravevski er í hlutverki sjötta manns hjá Garðabæjarliðinu en hefur engu að síður skorað 15,6 stig að meðaltali í leik. 12. apríl 2013 17:00 Hef unnið fyrir ríkisborgararéttinum Justin Shouse hefur sett svip sinn á íslenskan körfubolta síðastliðin átta ár. Fátt benti til þess að Bandaríkjamaðurinn 23 ára, sem renndi blint í sjóinn í Vík í Mýrdal haustið 2004, yrði kjörinn besti leikmaður efstu deildar sjö árum síðar. Í dag er hann óumdeildur leiðtogi Stjörnunnar sem margir reikna með að tryggi sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil áður en apríl er allur. 13. apríl 2013 10:00 Stjarnan með dýrasta lið sögunnar Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var hundfúll eftir tap sinna manna gegn Stjörnunni í úrslitakeppni Domino's-deildar karla í kvöld. Bæði með dómgæsluna og sína menn. 8. apríl 2013 21:43 Einstakt klúður ef Stjarnan verður ekki Íslandsmeistari KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson spáði í framhaldið í úrslitakeppni Dominos-deildar karla eftir tapið gegn Grindavík í gær. 12. apríl 2013 12:00 Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Snæfell 97-84 | Stjarnan í úrslit Stjarnan komst í kvöld í úrslit í Dominos-deild karla í körfubolta er liðið bar sigur úr býtum, 97-84, gegn Snæfell í fjórða leik liðanna í undanúrslitum. Stjarnan vann einvígið 3-1 eftir að hafa tapað fyrsta leiknum í einvíginu. Stjarnan mætir Grindavík í úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. 12. apríl 2013 18:30 Teigurinn í eigu Stjörnumanna í einvíginu Stjörnumenn hafa skorað 39,3 stig að meðaltali í leik inn í teig í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Snæfelli og yfirburðir Stjörnumanna í teignum eiga mikinn þátt í því að Stjörnumenn geta tryggt sér sæti í lokaúrslitum í kvöld. 12. apríl 2013 17:30 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Sjá meira
Jovan öflugri en allur Snæfellsbekkurinn Jovan Zdravevski er að koma sterkur inn af bekknum hjá Stjörnunni í þessari úrslitakeppni og það hefur ekki verið nein breyting á því í undanúrslitaeinvíginu á móti Snæfelli. Jovan Zdravevski er í hlutverki sjötta manns hjá Garðabæjarliðinu en hefur engu að síður skorað 15,6 stig að meðaltali í leik. 12. apríl 2013 17:00
Hef unnið fyrir ríkisborgararéttinum Justin Shouse hefur sett svip sinn á íslenskan körfubolta síðastliðin átta ár. Fátt benti til þess að Bandaríkjamaðurinn 23 ára, sem renndi blint í sjóinn í Vík í Mýrdal haustið 2004, yrði kjörinn besti leikmaður efstu deildar sjö árum síðar. Í dag er hann óumdeildur leiðtogi Stjörnunnar sem margir reikna með að tryggi sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil áður en apríl er allur. 13. apríl 2013 10:00
Stjarnan með dýrasta lið sögunnar Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var hundfúll eftir tap sinna manna gegn Stjörnunni í úrslitakeppni Domino's-deildar karla í kvöld. Bæði með dómgæsluna og sína menn. 8. apríl 2013 21:43
Einstakt klúður ef Stjarnan verður ekki Íslandsmeistari KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson spáði í framhaldið í úrslitakeppni Dominos-deildar karla eftir tapið gegn Grindavík í gær. 12. apríl 2013 12:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Snæfell 97-84 | Stjarnan í úrslit Stjarnan komst í kvöld í úrslit í Dominos-deild karla í körfubolta er liðið bar sigur úr býtum, 97-84, gegn Snæfell í fjórða leik liðanna í undanúrslitum. Stjarnan vann einvígið 3-1 eftir að hafa tapað fyrsta leiknum í einvíginu. Stjarnan mætir Grindavík í úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. 12. apríl 2013 18:30
Teigurinn í eigu Stjörnumanna í einvíginu Stjörnumenn hafa skorað 39,3 stig að meðaltali í leik inn í teig í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Snæfelli og yfirburðir Stjörnumanna í teignum eiga mikinn þátt í því að Stjörnumenn geta tryggt sér sæti í lokaúrslitum í kvöld. 12. apríl 2013 17:30