Apple fyrirtækið í Bandaríkjunum hefur gert samning við kínverska fyrirtækið China Mobile, sem er stærsta fjarskiptafyrirtæki heims, um sölu á Iphone farsímum í Kína.
Apple hefur lengi reynt að ná fótfestu á kínverskum farsímamarkaði en orðið undir í samkeppni við önnur fyrirtæki sem bjóða ódýrari vörur. Apple vonast til þess að selja 24 milljónir farsíma bara í Kína á næsta ári. Til samanburðar má nefna að á fyrstu níu mánuðum þess árs seldi Apple alls hundrað milljónir farsíma.
