Framúrskarandi fyrirtæki

Bein út­sending: Framúr­skarandi fyrir­tækjum fagnað

Starri Freyr Jónsson skrifar
Listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026 verður gerður opinber í dag við hátíðlega athöfn í Hörpu og í beinni útsendingu á Vísi. Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, mun setja viðburðinn sem hefst kl. 17.
Listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026 verður gerður opinber í dag við hátíðlega athöfn í Hörpu og í beinni útsendingu á Vísi. Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, mun setja viðburðinn sem hefst kl. 17. ANTON BRINK

Listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2026 verður gerður opinber við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag, miðvikudaginn 28. október. Bein útsending hefst á Vísi kl. 17.

Á síðasta ári komust 1.155 fyrirtæki inn á listann en í ár hefur þeim fjölgað um nokkra tugi. 

Á Vísi má finna sérvef tileinkaðan Framúrskarandi fyrirtækjum en listinn verður birtur í heild sinni kl. 16 í dag. Þar má auk þess finna ýmsar greinar og fróðleg viðtöl við forsvarsmenn Framúrskarandi fyrirtækja.

Húsið opnar kl. 16:30 og þá verða þeim Framúrskarandi fyrirtækjum sem hafa keypt vottun afhent viðurkenningarskjöl. Einnig verður boðið upp á léttar veitingar og tónlist. Formleg dagskrá hefst kl. 17 þegar Hrefna Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, setur viðburðinn.

Í kjölfarið heldur heiðursgestur dagsins, Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, erindi. Að lokum mun Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður stjórnar Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, afhenda sérstök hvatningarverðlaun fyrir framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni.

Það var glatt á hjalla í fyrra þegar listi Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki var kynntur í Laugardalshöll.

Þetta er í sautjánda skiptið sem Creditinfo veitir Framúrskarandi fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi vottun fyrir góðan og traustan rekstur. Vottunin er verðmæt viðurkenning sem getur styrkt stöðu fyrirtækja á markaði og aukið traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Það er því mikils virði fyrir fyrirtæki að skara fram úr og hljóta slíka viðurkenningu.

Á síðasta ári hlaut sjávarútvegsfyrirtækið Brim hvatningarverðlaun Creditinfo og Festu - miðstöðvar um sjálfbærni, fyrir framúrskarandi framlag til sjálfbærrar þróunar.

Creditinfo stendur að vali á Framúrskarandi fyrirtækjum í samstarfi við Festu – miðstöð um sjálfbærni og SÝN.


Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×