Framúrskarandi fyrirtæki

Frá löngum gát­lista yfir í flennigír og fögnuð

Starri Freyr Jónsson skrifar
„Það myndast alltaf hörkustemning í kringum Framúrskarandi fyrirtæki hjá okkur á hverju ári,“ segir Mist Edvardsdóttir, viðskiptastjóri hjá Creditinfo, en hún sér einnig um markaðsmál fyrirtækisins.
„Það myndast alltaf hörkustemning í kringum Framúrskarandi fyrirtæki hjá okkur á hverju ári,“ segir Mist Edvardsdóttir, viðskiptastjóri hjá Creditinfo, en hún sér einnig um markaðsmál fyrirtækisins. Mynd/Anton Brink.

Haustinu og upphafi vetrar fylgir árleg spenna og tilhlökkun í höfuðstöðvum Creditinfo í Reykjavík. Þá fer vinnan við Framúrskarandi fyrirtæki á fullt og nú er í sautjánda sinn unnið hörðum höndum að listanum. Þótt verkefnið sé löngu orðið fastur liður á þessum árstíma virðist spennan og eftirvæntingin ekkert hafa minnkað með árunum.

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt þeim sem standast ströng skilyrði viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki. Þau eiga það sameiginlegt að byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og sýna stöðugleika og góðan árangur. Að baki listanum sjálfum liggur hins vegar umfangsmikil vinna sem hefst löngu áður en niðurstöðurnar líta dagsins ljós.

Mist Edvardsdóttir viðskiptastjóri hefur starfað hjá Creditinfo í átta ár en hún sér einnig um markaðsmál fyrirtækisins og kemur því í ríkari mæli að skipulagningu og framkvæmd verkefnisins í ár

Hún segist hafa fengið enn betri innsýn í umfang vinnunnar fyrir vikið. „Vinnan hefst í raun snemma á vormánuðum þegar starfsmenn úr öllum deildum fyrirtækisins byrja að koma saman, ræða og undirbúa öll þau fjölmörgu verkefni og handtök sem þarf að vinna til að láta þetta verða að veruleika. Það hefur komið mér talsvert á óvart hvað gátlistinn er gríðarlega langur.“

Framúrskarandi törnin hefst eftir sumarfrí

Þótt fyrstu skrefin séu tekin að vori segir Mist að ákveðin kaflaskil verði þegar sumarfríum lýkur. Þá fer verkefnið á fullt og Framúrskarandi fyrirtæki verða sífellt fyrirferðarmeiri í daglegu lífi starfsfólks Creditinfo. „Vinnan fer á fullt þegar fólk snýr aftur úr sumarfríi eftir verslunarmannahelgina og þá kemur mannskapurinn yfirleitt ferskur inn í Framúrskarandi törnina.“

Rúmlega 40 manns starfa hjá Creditinfo og koma allir með einum eða öðrum hætti að verkefninu. Í kjarnahópnum sem sinnir undirbúningnum eru um átta starfsmenn úr ólíkum deildum fyrirtækisins. Þeir hittast vikulega á töflufundum og fara yfir stöðuna.

Þar koma meðal annars saman starfsmenn úr greiningarteyminu, vöru- og verkefnastýringu, þjónustu, viðskiptastýringu og upplýsingatækni. Eftir því sem nær dregur útgáfu listans bætast síðan fleiri hendur við og að lokum hefur allt starfsfólkið hlutverki að gegna.

Aðeins um 2,5 prósent ná í gegn

Mikil vinna liggur einnig að baki listanum sjálfum og segir Mist að sá hluti verkefnisins sé líklega ekki öllum sýnilegur. Greiningarteymið leggur mikla vinnu í að tryggja að niðurstöðurnar séu eins nákvæmar og kostur er. 

Ég held að fæstir átti sig almennilega á því hvað það fer mikil vinna hjá greiningarteyminu okkar í að gera þennan lista eins nákvæman og hægt er.

Aðeins um 2,5 prósent allra fyrirtækja í landinu uppfylla þau fjölmörgu og ströngu skilyrði sem gerð eru til Framúrskarandi fyrirtækja. Mist segir kröfurnar auk þess hafa verið auknar undanfarin ár enda eigi fyrirtækin á listanum að fara fram með góðu fordæmi.

Þegar líður á haustið eykst hraðinn svo jafnt og þétt á skrifstofunni. „Maður á eftir að finna fyrir því enn frekar þegar nær dregur útgáfu listans. Hraðinn á skrifstofunni verður meiri og það er spenna og tilhlökkun í loftinu. Starfsfólk fer að lengja eftir því að sjá afrakstur allrar vinnunnar og vinnudagarnir eru gjarnan langir síðustu vikurnar fyrir viðburð.“

„Þetta er bara hátíð“

Allt er þetta þó gert með lokahnykkinn í huga. Hápunkturinn er viðburðurinn sjálfur í Hörpu í lok október þar sem Framúrskarandi fyrirtækjum er boðið til fögnuðar og árangrinum fagnað. Mist segir viðburðinn jafnframt hafa fest sig í sessi sem öflugan tengslamyndunarviðburð þar sem fólk úr fjölbreyttum atvinnugreinum kemur saman.

Innan Creditinfo fylgir verkefninu líka sérstök stemning. „Það myndast alltaf hörkustemning í kringum Framúrskarandi fyrirtæki hjá okkur á hverju ári.“

Ég upplifi ákveðinn árshátíðarfíling í kringum þetta enda gerum við starfsfólk okkur líka glaðan dag að viðburði loknum og fögnum saman góðu verki.

Mist er sjálf að fara inn í sitt áttunda Framúrskarandi haust hjá Creditinfo og segir lokadaginn ekkert hafa misst sinn sjarma. „Það mæta allir í sínu fínasta pússi og flennigír í vinnuna áður en við höldum svo í Hörpu síðdegis til að taka á móti Framúrskarandi fyrirtækjunum og skála fyrir þeim. Þetta er bara hátíð.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×