Mike Cook Jr. tryggði Þór sigurinn sekúndu fyrir leikslok Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2013 18:45 Jason Smith hjá KFÍ. Mynd/Daníel
Þórsarar eru áfram með fullt hús í Dominos-deild karla í körfubolta eftir 100-98 sigur á KFÍ í frábærum leik í Jakanum á Ísafirði í kvöld en þar var einmitt hægt að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á Vísi í boði KFÍTV. Mike Cook Jr. tryggði Þór sigurinn þegar hann skoraði sigurkörfuna einni sekúndu fyrir leikslok en tólf sekúndum fyrr hafði Nemanja Sovic jafnaði metin í 98-98 með þriggja stiga körfu. Þórsliðið hefur unnið alla þrjá leiki sína í deildinni en þetta var fjórða tap KFÍ-liðsins í röð. Mike Cook Jr. og Nemanja Sovic fóru á kostum hjá Þór en þeir komust báðir yfir 30 stiga múrinn í þessum leik, Cook skoraði 37 stig og tók 10 fráköst og Sovic var með 36 stig og 13 fráköst. Jason Smith var með 33 stig og 11 stoðsendingar fyrir KFÍ sem var þremur stigum yfir þegar fimmtán sekúndur voru til leiksloka. Mirko Stefán Virijevic var með 24 stig og 14 fráköst og Ágúst Angantýsson skoraði 14 stig. KFÍ byrjaði leikinn mun betur á meðan lykilmenn Þórsara, Ragnar Ágúst Nathanaelsson og Baldur Þór Ragnarsson voru í miklu villuvandræðum í fyrsta leikhlutanum þar sem að þeir fengu báðir þrjár villur. KFÍ var 21-18 yfir eftir fyrsta leikhlutann og var tíu stigum yfir, 42-32, þegar tæpar þrjár mínútur voru til hálfleiks. Þórsarar unnu hinsvegar þessar þrjár mínútur 14-2 og voru tveimur stigum yfir í hálfleik, 46-44, eftir þriggja stiga körfu frá Þorsteini Ragnarssyni í lokin. Þórsarar héldu frumkvæðinu í þriðja leikhlutanum og voru sjö stigum yfir, 77-70, fyrir lokaleikhlutann. Ísfirðingar voru hinsvegar búnir að jafna í 80-80 eftir tvær mínútur og lokamínúturnar voru síðan æsispennandi. KFÍ virtist vera að ná sigrinum í hús á lokasekúndunum en þá komu þeir félagar Nemanja Sovic og Mike Cook Jr. með risakörfur sem skiluðu lærisveinum Benedikts Guðmundssonar tveimur stigum með sér suður í Þorlákshöfn.KFÍ-Þór Þ. 98-100 (21-18, 23-28, 26-31, 28-23)KFÍ: Jason Smith 33/11 stoðsendingar, Mirko Stefán Virijevic 24/14 fráköst, Ágúst Angantýsson 14/8 fráköst, Hraunar Karl Guðmundsson 12, Leó Sigurðsson 8, Jón Hrafn Baldvinsson 7.Þór Þ.: Mike Cook Jr. 37/10 fráköst, Nemanja Sovic 36/13 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 8/4 fráköst/5 stoðsendingar, Þorsteinn Már Ragnarsson 7/4 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 7/4 fráköst, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 5/7 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Sjá meira