Hefði labbað út ef mér hefði verið boðið upp á þetta 20. september 2013 20:45 Richardson hefur alla burði til þess að verða stórstjarna á næstu árum.
Gríðarlega óvænt félagaskipti urðu í NFL-deildinni í vikunni. Einn efnilegasti leikmaður deildarinnar, hlauparinn Trent Richardson, fór þá frá Cleveland Browns til Indianapolis Colts. Cleveland fékk í staðinn valrétt í fyrstu umferð nýliðavalsins á næsta ári. Richardson var valinn þriðji í nýliðavalinu í fyrra og átti fínt ár í lélegu liði Browns. Liðið er búið að tapa fyrstu tveim leikjum sínum í vetur og stuðningsmenn félagsins líta svo á að það sé búið að kasta inn hvíta handklæðinu nú þegar. Mike Holmgren var forseti Cleveland í fyrra en var rekinn í lok tímabilsins. Hann var einnig frábær þjálfari og vann SuperBowl með Green Bay Packers á sínum tíma. Holmgren segist vart trúa því sem félagið hafi gert. "Hvernig bætir það liðið að senda frá sér besta leikmann liðsins? Þetta er gríðarlega verðmætur leikmaður," sagði Holmgren hissa. "Ég hreinlega skil þetta ekki. Ef ég væri þjálfari og félagið mitt gerði svona þá hefði ég farið fram á að vera rekinn. Ef ekki þá hefði ég bara hætt. Ég hefði labbað út." Þetta eru aftur á móti frábær tíðindi fyrir lið Colts sem er á mikilli uppleið. Andrew Luck var valinn fyrstur í nýliðavalinu í fyrra og hann hefur staðið sig frábærlega. Hlaupaleikurinn hefur verið hausverkur en með komu Richardson breytist landslagið ansi mikið. Þeir eru þess utan báðir kornungir og eiga framtíðina fyrir sér.
NFL Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Norris á ráspól í Singapúr Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju Eðla rölti inn á brautina á æfingu „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Sjá meira