Snæfell er búið að finna sér Bandaríkjamann fyrir átökin í vetur. Sá heitir Jamarco Warren og er leikstjórnandi.
Warren kemur frá Charleston Southern-háskólanum en hann lauk námi þar árið 2011. Hann hefur síðan leikið í sumardeildum og einnig farið með liði til Japan.
Hann er 177 sentimetrar að hæð og á lokaári sínu í háskólanum var hann með 17,8 stig, 3 fráköst og 2,8 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Warren er á leið til landsins og mun spila með Hólmurum á föstudaginn er liðið leikur gegn ÍR í Lengjubikarnum.
Snæfell semur við Jamarco Warren
