Á hverju ári eru tveir einstaklingar valdir til þátttöku í námskeiði á vegum IOA (International Olympic Academy) í Ólympíu í Grikklandi.
Að þessu sinni urðu sundkonan Anna Rún Kristjánsdóttir og körfuknattleikskappinn Sigurður Orri Hafþórsson fyrir valinu. Námskeiðið stendur yfir í tvær vikur frá 11.-25. júní og koma þátttakendur víða að.
Þema þessa námskeiðs er Ólympíuarfleifðin og Ólympisminn og ungdómurinn.
