Ná Haukakonur aftur Suðurnesjaþrennunni? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2013 18:02 Haukakonan Auður Ólafsdóttir. Mynd/Valli
Heil umferð fer fram í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld og þar gætu línur skýrst út um alla töflu. Keflavík og Snæfell berjast um deildarmeistaratitilinn, KR og Valur berjast um 3. sætið, Haukakonur lifa í voninni um sæti í úrslitakeppninni og Fjölnir þarf að vinna til að setja spennu í fallbaráttuna. Keflavíkurkonur töpuðu fyrsta leik eftir sigur liðsins í bikarúrslitaleiknum en þær hafa ekki tapað tveimur leikjum í röð í deild og bikar í vetur og taka á móti Grindavík í kvöld. Keflavík er með fjögurra stiga forskot á Snæfelli í baráttunni um deildarmeistaratitilinn. Snæfell tekur á móti Fjölni í hinum einvígi kvöldsins á milli efstu og neðstu liðanna. Fjölnir er í neðsta sæti sex stigum á eftir Grindavík og Fjölniskonur þurfa að fara að vinna leiki ætli þær sér að spila áfram í deildinni. Snæfell minnkaði forskot Keflavíkur í fjögur stig í síðustu umferð en eftir þrjú heimatöp í röð í deild og bikar eru Hólmarar ólmir í að fagna sigri í Fjárhúsinu. Valskonur taka á móti sjóðheitu KR-liði þar sem Vesturbæjarliðið getur nánast tryggt sér í það minnsta þriðja sætið með sigri. KR-konur eru búnar að vinna fimm leiki í röð og geta náð sex stiga forskoti á Val með sigri. Þær þurfa hinsvegar að vinna leikinn með 48 stigum til að vera með betri stöðu í innbyrðisleikjum. Valsliðið er búið að tapa þremur leikjum í röð þar á meðal var bikarúrslitaleikurinn á móti Keflavík. Lokaleikur kvöldsins er síðan á milli Njarðvíkur og Hauka í Ljónagryfjunni. Haukakonur hafa unnið Grindavík og Keflavík í síðustu leikjum sínum og eiga möguleika á að ná Suðurnesjaþrennu í annað skiptið á þessu ári. Haukar unnu líka öll Suðurnesjaliðin þrjú í einum rykk í janúarmánuði.Leikir kvöldsins í Dominos-deild kvenna í körfubolta:(Allir leikirnir hefjast klukkan 19.15) Toyota höllin í Keflavík: Keflavík - Grindavík Ljónagryfjan í Njarðvík: Njarðvík - Haukar Fjárhúsið í Stykkishólmi: Snæfell - Fjölnir Vodafone-höllin á Hlíðarenda: Valur - KR
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira