Hef alltaf verið hreinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 10. nóvember 2012 10:00 Auðunn Jónsson er á hátindi ferilsins fertugur að aldri og hefur gengið í gegnum margt á ferlinum. Mynd/Valli
Kópavogströllið Auðunn Jónsson gerði sér lítið fyrir og varð heimsmeistari í réttstöðulyftu á HM sem fram fór í Púertó Ríkó. Auðunn lyfti 365,2 kílóum, sem dugði til sigurs. Frábær árangur hjá Kópavogsbúanum, sem er nýorðinn fertugur. „Ég fór með þær væntingar í mótið að vinna réttstöðulyftuna en ég vissi að þetta yrði gríðarlega hörð keppni," sagði Auðunn og glotti við tönn. Þegar hann var að æfa í sumar með hinum 19 ára gamla Júlían Jóhannssyni settu þeir sér báðir háleit markmið. „Þá ákváðum við báðir að taka gull í réttstöðulyftu í ár. Júlían fer svo út á HM unglinga og vinnur gull. Þá var kominn pressa á kallinn. Það var því virkilega sætt að ná að landa þessu." Var ekki á neinum lyfjum er ég féll á lyfjaprófiAuðunn varð heimsmeistari árið 2006 en missti titilinn eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Hann var í kjölfarið dæmdur í tveggja ára bann. Auðunn var aldrei sáttur við hvernig prófið var framkvæmt og ekki síður ósáttur við niðurstöðuna. Hann náði þó ekki að hnika henni. „Ég var ekki á neinum ólöglegum lyfjum á þessu móti. Ég var mjög ósáttur við allt þetta ferli. Ég var ósáttur við hvernig ég var tekinn í lyfjapróf. Mér leið strax eftir prófið eins og ég hefði gert eitthvað af mér. Mér leið eins og ég væri glæpamaður," sagði Auðunn. Hvernig fór þetta umdeilda próf fram? „Ég er nýkominn til Noregs á HM. Kem seint um kvöld og fer beint að sofa. Fyrir átta um morguninn er bankað á hurðina. Félagi minn fer til dyra og þeir koma hlaupandi inn í herbergi að mér. Ég er svo tekinn upp í eitthvað herbergi. Ekki á einhvern ákveðinn stað þar sem lyfjapróf fara fram. Mér var svo brugðið að það lá við að mig langaði heim aftur. Þetta var ömurleg framkoma við íþróttafólkið," sagði Auðunn, sem kvartaði yfir meðferðinni og mótshaldarar fengu skömm í hattinn. Hefur slík uppákoma ekki átt sér stað síðan á þessum mótum. Það breytti samt ekki niðurstöðunni. Auðunn var dæmdur fyrir að falla á lyfjaprófinu og þurfti að taka út tveggja ára bann. „Í lyfjaprófinu var ekki hægt að sýna fram á beina lyfjanotkun heldur vildu þeir meina að það hefðu verið einhver niðurbrotsefni í sýninu sem ég er dæmdur fyrir. Ég hafði ekki tekið ólögleg lyf og fór með málið eins langt og ég gat, alla leið í íþróttadómstólinn í Sviss, en hafði ekki erindi sem erfiði. Ég efast um að nokkur íþróttamaður hafi farið með sitt mál svona langt. Ég hef alltaf verið ósáttur við þessa niðurstöðu." Held að margir trúi því að ég neyti ekki ólöglegra lyfjaAuðunn segist gera sér grein fyrir því að fullt af fólki líti á hann sem manninn sem féll á lyfjaprófi og telji að hann noti stera. Heldur hann að fólk trúi því að hann hafi aldrei neytt ólöglegra lyfja? „Ég veit það ekki. Ég held að margir trúi því samt. Margir halda að þetta snúist bara um lyf en ekki að æfa vel, borða vel, sofa vel, lifa heilbrigðu lífi og vera náttúrulega sterkur. Ég hef alltaf lagt gríðarlega mikið á mig og jafnvel meira en margur heldur. Það er ástæðan fyrir því að ég skara fram úr en ég veit að það trúa því ekki endilega allir. Ég get ekkert gert við því." Þar sem Kraftlyftingasambandið er komið inn í ÍSÍ þarf Auðunn að gangast undir lyfjapróf á vegum ÍSÍ eins og aðrir íslenskir íþróttamenn. Hann er líka í lyfjaprófunarhópi ÍSÍ og þarf því alltaf að láta vita hvar hann er. Það þarf alltaf að vera hægt að ná í hann í próf. „Ég þarf að gefa upp hvern klukkutíma á hverjum degi hvað ég sé að gera. Ef það breytist þarf ég að láta vita af því. Á þessu ári er ég búinn að fara í þrjú lyfjapróf. Tvö á vegum ÍSÍ og svo úti á heimsmeistaramótinu. Ég hef staðist þau öll. Ég hef líklega farið í tíu eða tólf próf hjá ÍSÍ á síðustu árum og alltaf staðist," sagði Auðunn en hefur hann aldrei neytt ólöglegra lyfja á ferlinum? „Nei, það hef ég aldrei gert. Ég hef alltaf verið hreinn og get sagt það blákalt. Það var því ekki gott að fá þennan stimpil. Ég get ekki neitað því. Nú hef ég öll þessi lyfjapróf og þennan árangur á bak við mig núna. Það talar sínu máli og gott að geta sýnt fram á að það er hægt að vera stór og sterkur án þess að nota ólögleg lyf." Vil hafa allt uppi á borðumAuðunn segist hafa fagnað því manna mest er Kraftlyftingasambandið fór inn í ÍSÍ og hann væri því samþykktur íþróttamaður og gjaldgengur í öll kjör. „Það er rosalega sætt að ná þessu eftir það sem á undan er gengið. Sérstaklega þar sem nú erum við inni í ÍSÍ. Ég vildi óska þess að þannig hefði það alltaf verið. Ég væri líklega ekki enn að lyfta ef við hefðum ekki farið inn í ÍSÍ. Ég vil styðja það góða starf sem Kraftlyftingasambandið er með. Ég hef oft svekkt mig á því að vera ekki gjaldgengur í nein kjör eins og til að mynda íþróttamaður Kópavogs þar sem ég bý. Þetta er sem betur fer allt annað og betra umhverfi í dag og ég er þakklátur fyrir það. Það skiptir mig miklu máli að geta haft allt upp á borði og fólk sjái að ég er að ná þessum árangri á heiðarlegan hátt."
Íþróttir Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti Eiríkur nýr þjálfari Vals Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Strax aftur á sigurbraut Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sjá meira