
Á umfjöllun um ESB og EES heima í námskrám framhaldsskóla?
Þessar ákvarðanir hafa þó oft mikil áhrif á Íslandi. Þá leiddi nýleg skýrsla í Noregi það í ljós að þar væri búið að innleiða um ¾ hluta af regluverki ESB og Noregur væri því í raun jafnmikill þátttakandi í ESB og sum ríkjanna innan ESB. Það sama má í raun segja um Ísland þó ómögulegt sé. Það má þó sem dæmi nefna að Írland og Bretland eru ekki þátttakendur í Schengen samstarfinu en hafa þó aðgang að fundum er varða samstarfið á sama hátt og Ísland og Noregur sökum aðildar að ESB. Kannski er hægt að halda því fram að það sé ekki nógu góð ástæða fyrir aðild að við séum hvort eð er það miklir þátttakendur í ESB nú þegar, en það er allavega umhugsunarvert.
Í Húsi Noregs (Norway House) í Brussel fyrir nokkru kynnti Fredrik Sejersted, höfundur norsku skýrslunnar, skýrsluna sjálfa. Hann útskýrði meðal annars að EES rétturinn væri afar veigamikill í viðskiptalífi Noregs og ég vil meina að það sama megi segja um Ísland enda snertir hann nánast öll svið íslensks samfélags. Á hverjum degi hefur ESB og EES áhrif á líf okkar. Hversu lengi við megum vinna, hversu lengi rútubílstjórinn má keyra án þess að taka sér hvíld, hvaða mat við megum ekki borða, hvaða leikföng börnin okkar mega ekki leika sér mér, hvaða tóbaks við megum ekki neyta, í hvaða löndum við megum vinna og svona mætti lengi telja.
Sejerstad benti á að engu að síður væri að finna litlar sem engar upplýsingar um EES og ESB í skólabókum í Noregi og það er í raun ekki á kennsluskrá fyrr en á háskólastigi og þá eingöngu í fögum tengdum EES og ESB. Sejersted velti því fyrir sér hvers vegna ekki væri að finna upplýsingar um EES í skólum landsins og ekki einu sinni í Handelsgymnasiet (samsvarar Verslunarskóla Íslands). Ef áhugi á aðild að ESB er skoðaður á Íslandi og Noregi virðist stuðningur hærri meðal þeirra sem hafa menntun eða starfsreynslu á sviði ESB. Skyldi það vera vegna þess að þessir aðilar sjá hag sínum betur borgið gerist Ísland aðili að ESB eða eru þeir orðnir heilaþvegnir? Að mínu mati er ástæðan sú að þeir séu upplýstari um hömlurnar sem fylgja því að vera takmarkaður innan landamæra eins lands.
Í útvarpsþætti á Íslandi, fyrir nokkrum árum, var áhugi unglinga í framhaldsskólum landsins á aðild Íslands að ESB til umræðu. Unglingarnir voru spurðir hvort þeir væru hlynntir aðild og svöruðu allir að þeir vildu ekki að Ísland gengi í ESB. Þegar fréttamaður spurði hvers vegna hikuðu unglingarnir og sögðu að það væri sökum þess að foreldrar þeirra vildu það ekki. Ég hef fullan skilning á svörum þeirra enda hef ég verið í nákvæmlega sömu stöðu. Ég ólst að hluta til upp í Noregi og bjó þar þegar umræða um aðild Noregs stóð sem hæst. Á þessum tíma gengu um bekkinn minn svokallaðar vinabækur.
Einn daginn tók ég með mér heim slíka bók í eigu bekkjarsystur minnar. Eftir að hafa fyllt út fullt nafn, augnlit, nafn systkina og uppáhalds gæludýr kom ég að spurningunni „Ja eller Nei til EU" (Já eða Nei við ESB). Þessi spurning var mér ofviða og líkt og svo oft áður leitaði ég til föður míns. Hvað þýðir þetta? Spurði ég hann. Hverju hann svaraði man ég ekki. Næsta spurning var: vil ég það? Svarinu við þeirri spurningu mun ég aldrei gleyma. Það var: nei. Hann gerði mér vissulega grein fyrir því að ég yrði að mynda mér sjálf skoðun um þetta málefni en engu að síður sat svarið fast í huga mér og var ég orðin ESB andstæðingur ellefu ára gömul án nokkurar þekkingar á hugtakinu.
Eftir tvo áfanga í Evrópurétti í háskólanum var ég í raun heldur ekkert nær því að vita hvað fælist í EES og ESB né hvaða áhrif það hefði á íslenskt samfélag. Ég tel það tímabært að umfjöllun um ESB og EES sé bætt í kennsluskrár framhaldsskóla landsins svo að allir geti, á upplýstan hátt, lært um kosti og galla þess út frá raunhæfum forsendum og skilið hlutverk okkar innan þess. Ég er ekki, með þessari grein, að lýsa yfir stuðningi við aðild að ESB. Ég tel hinsvegar að það sé Íslandi og íslensku samfélagi fyrir bestu að vera upplýst um stöðu okkar innan ESB og Evrópu. Óháð því hvort við gerumst aðilar eða ekki.
Skoðun

Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við?
Einar G. Harðarson skrifar

Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar?
Henning Arnór Úlfarsson skrifar

Málþóf og/eða lýðræði?
Elín Íris Fanndal skrifar

Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar?
Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Ísafjarðarbær í Bestu deild
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar

Þjóðarmorð í beinni
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar

Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig
Birgir Dýrfjörð skrifar

Atvinnufrelsi!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Að mása eða fara í golf
Jón Pétur Zimsen skrifar

Leiðréttum kerfisbundið misrétti
Jónína Brynjólfsdóttir skrifar

Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sparnaðarráð fyrir ferðalagið
Svandís Edda Jónudóttir skrifar

Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín
Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar

Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram
Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar

Samráðsdagar á Kjalarnesi
Ævar Harðarson skrifar

Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að mása sig hása til að tefja
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Sjónarspil í Istanbul
Gunnar Pálsson skrifar

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar