Tökur hefjast við Mývatn í haust 2. júní 2012 15:30 Kit Harington við tökur á Game of Thrones 2 í fyrra. Tökur á þriðju þáttaröðinni hefjast hér á landi í haust. fréttablaðið/vilhelm fréttablaðið/vilhelm „
Það er nokkurn veginn búið að ákveða að þau komi í haust aftur,“ segir Snorri Þórisson hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus. Þriðja þáttaröð af miðaldafantasíunni Game of Thrones verður að hluta til tekin upp hér á landi. Aðilar frá bandarísku sjónvarpsþáttunum komu hingað fyrripartinn í maí og skoðuðu tökustaði í samvinnu við Pegasus. Þeim leist vel á Norðurland og þá sérstaklega Mývatnssvæðið. „Þetta verður einhvers staðar þar en það er ekki búið að negla það alveg niður. Það eru margir staðir sem koma til greina. Menn þekkja Suðurlandið og það getur vel verið að það verði eitthvað þar líka. En það eru ekki endilega jöklar sem þeir vilja mynda núna,“ segir Snorri. Hann er sammála því að þetta séu fín tíðindi fyrir Pegasus og íslenskan kvikmyndaiðnað enda unnu á þriðja hundrað manns við síðustu þáttaröð, þar á meðal fjöldi Íslendinga. Hún var að hluta til tekin upp við rætur Vatnajökuls síðasta haust. Talið er að kostnaðurinn við framleiðsluna hér landi hafi numið rúmlega 200 milljónum íslenskra króna. Rúmlega tíu milljónir hafa samanlagt fylgst með hverjum þætti af Game of Thrones hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni HBO. Þáttaröðin er þar með orðin sú þriðja vinsælasta í sögu stöðvarinnar. -fb
Game of Thrones Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Fleiri fréttir Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Sjá meira