Handbolti

Freyr Brynjarsson ekki að hætta - fésbókargrikkur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Freyr Brynjarsson.
Freyr Brynjarsson. Mynd/Daníel
Freyr Brynjarsson, handboltamaður í Haukum, hefur ekki verið að spila með liðinu að undanförnu vegna meiðsla en það styttist í endurkomu hans þrátt fyrir dramatíska yfirlýsingu á fésbókinni í morgun.

Á fésbókarsíðu Freys í dag kom fram yfirlýsing að hann væri hættur í handbolta vegna meiðsla en þegar Vísir hafði samband við hann þá kom í ljós að um fésbókargríkk var að ræða.

„Það komst vinnufélagi inn á fésbókina hjá mér. Ég tek á honum og finn eitthvað til að gera við hann líka," sagði Freyr hlæjandi þegar Vísir heyrði í honum hljóðið.

„Staðan á mér er góð og ég er bara að fara spila aftur fljótlega," sagði Freyr sem hefur unnið ófáa titlana með Haukum í gegnum árin. Freyr hefur misst af tveimur síðustu leikjum Hauka en næsti leikur liðsins er á móti ÍR á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×