Messi: Argentínumenn elska mig nú eins og fólkið í Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2012 11:00 Lionel Messi. Mynd/AP
Lionel Messi er kominn á sama flug með argentínska landsliðinu og hann er á hjá Barcelona á Spáni. Messi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Argentínu á Úrúgvæ í undankeppni HM aðfaranótt laugardagsins. Messi skoraði "bara" 11 mörk í 41 leik með argentínska landsliðinu frá 2008 til 2011 á sama tíma og hann skoraði 211 mörk í 219 leikjum með Barcelona. Það kallaði á miklar vangaveltur í heimalandinu enda skildi enginn af hverju Messi var ekki sami leikmaður og þeir sáu spila með Barcelona í sjónvarpinu. Lionel Messi hefur nú fundið taktinn með landsliðinu og er búinn að skora 12 mörk í síðustu 8 landsleikjum þar af 6 mörk í 8 leikjum í undankeppni HM 2014. „Ég er alltaf ánægður þegar ég spila fyrir Argentínu. Núna þegar við erum farnir að vinna leikina þá er allt miklu auðveldara og skemmtilegra," sagði Lionel Messi við blaðamenn eftir sigurinn á Úrúgvæ. „Ég er himinlifandi með að stuðningsmenn argentínska landsliðsins eru farnir að sýna mér ást. Það var þannig hjá River Plate, svo aftur í Cordoba og loks hér í Mendoza. Ég er mjög ánægður með Argentínumenn elska mig nú eins og fólkið í Barcelona," sagði Messi. „Það var mikilvægt að vinna þennan leik og við vinnum aftur í Chile þá stígum við stórt skref í áttina að tryggja okkur inn á HM í Brasilíu. Chile verður samt erfiður mótherji því þeir eru með flott lið sem þarf á sigri að halda," sagði Messi.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Spænski boltinn Mest lesið Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn KR - Sindri 107-102 | Hetjuleg barátta dugði skammt Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sjá meira