Heldur sigurganga Snæfells og Keflavíkur áfram? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. október 2012 14:12 Mynd/Stefán
Heil umferð fer fram í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld og meðal leikja eru Reykjanesbæjarslagur í Ljónagryfjunni og slagur KFUM-félöganna í Vodafonehöllinni. Keflavík og Snæfell hafa unnið alla sína leiki til þessa en Fjölnir og Grindavík eru enn að bíða eftir sínum fyrsta sigri. KFUM-félögin Valur og Haukar mætast í Vodafonehöllinni. Valur er búið að vinna tvo leiki í röð en Haukakonur hafa bara náð í einn sigur út úr fyrstu þremur leikjum sínum og kom sá sigur í Njarðvík. Haukakonan Siarre Evans er með 25,0 stig og 19,7 fráköst í leik í fyrstu þremur leikjum liðsins en það hefur ekki verið nóg. Íslands og bikarmeistarar Njarðvíkur fá topplið Keflavíkur í heimsókn í Ljónagryfjuna. Lele Hardy, spilandi þjálfari Njarðvíkur, er puttabrotin en heldur samt áfram að skila magnaðri tölfræði. Keflavíkurliðið hefur aftur á móti unnið alla þrjá leiki sína með sannfærandi hætti þar sem hin unga Sara Rún Hinriksdóttir hefur farið á kostum. Snæfell tekur á móti botnliði Grindavíkur í Stykkishólmi en Snæfells vann alla leiki sína og báða titla í boði á undirbúningstímabilinu og hefur síðan unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni. Nýliðar Grindavíkur eiga enn eftir að vinna leik. Fjórði og síðasti leikur kvöldsins er á milli Fjölnis og KR í Grafarvoginum en lítið hefur gengið hjá báðum liðum í upphafi móts. Fjölnir er enn án stiga en KR-liðið hefur tapað stórt í tveimur síðustu leikjum eftir sigur á Grindavík í fyrsta leik. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira