Þórsarar upp í annað sætið - Chijindu með bæði mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2012 17:58 Chukwudi Chijindu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Þórsarar eru komnir upp í annað sætið í 1. deild karla í fótbolta eftir 2-1 sigur á Víkingum í Ólafsvík í dag en Ólafvíkur-Víkingar eru engu að síður með tveggja stiga forskot á toppnum. Þórsarar eiga leik inni og eru í góðum málum í baráttu sinni fyrir að endurheimta sæti sitt í Pepsi-deildinni. Chukwudi Chijindu skoraði bæði mörk Þórsara á Ólafsvík í dag og hefur þar með skorað 4 mörk í fyrstu 3 leikjum sínum með norðanliðinu. Chukwudi Chijindu er fyrrum leikmaður í bandarísku atvinnumannadeildinni en kom til Þórs í síðasta mánuði. Chijindu skoraði sigurmarkið á móti Hetti í síðasta leik og fyrra markið í 2-1 sigri á Haukum þegar hann klæddist Þórspeysunni í fyrsta skiptið. Hann hefur því verið á skotskónum í öllum þremur leikjunum. BÍ/Bolungarvík hoppaði upp í sjöunda sæti deildarinnar eftir 3-1 sigur á botnliði Hattar. Höttur frá Egilsstöðum er nú með 12 stig úr 15 leikjum og er tveimur stigum á eftir næstu liðum sem eru Breiðholtsliðin ÍR og Leiknir.Úrslit og markaskorarar í 1. deild karla í dag:BÍ/Bolungarvík - Höttur 3-1 0-1 Högni Helgason (14.), 1-1 Andri Rúnar Bjarnason (29.), 2-1 Mark Tubæk (39.), 3-1 Mark Tubæk, víti (79.)Víkingur Ólafsvík - Þór 1-2 0-1 Chukwudi Chijindu (29.), 0-2 Chukwudi Chijindu (35.), 1-2 Torfi Karl Ólafsson (86.) Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af vefsíðunni úrslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Sjá meira