Eric James Palm, sem spilaði með Þór í næstefstu deild karla á síðustu leiktíð, hefur gengið frá samningum við ÍR. Breiðhyltingar halda áfram að styrkja lið sitt fyrir átökin í Iceland Express-deildinni á næstu leiktíð.
Í tilkynningu frá ÍR-ingum segir að mikils sé vænst af Palm á næstu leiktíð og ánægju líst yfir komu hans.
Hreggviður Magnússon gekk á dögunum frá samningi við ÍR-inga en Jón Arnar Ingvarsson er sem kunnugt er snúinn aftur í Breiðholtið og tekinn við þjálfun liðsins.
Kaninn frá Þór kominn til ÍR
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið


Sex leikmenn Íslands í lyfjapróf
Fótbolti




Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin
Íslenski boltinn



„Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“
Fótbolti
