Kiel enn með fullt hús stiga Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. apríl 2012 20:15 Alfreð Gíslason. Nordic Photos / Getty Images
Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og er Kiel enn á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel hafa nú spilað 28 leiki á tímabilinu og unnið þá alla. Þeir eru því aðeins sex leikjum frá fullkomnu tímabili í sterkustu deildarkeppni heims. Aron Pálmarsson var ekki í leikmannahópi Kiel í dag. Füchse Berlin er í þriðja sæti deildarinnar en liðið hafði betur gegn Bergischer HC á heimavelli í kvöld, 35-27. Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Berlínarliðið og Rúnar Kárason fyrir Bergischer. Bergischer er í sextánda sæti deildarinnar með fimmtán stig - fjórum stigum frá öruggu sæti. Flensburg er í öðru sæti deildarinnar, einu stigi á undan Füchse Berlin, en liðið hafði betur gegn Gummersbach á útivelli, 32-30. Í fimmta sætinu er Rhein-Neckar Löwen en liðið vann öruggan útisigur á botnliði Eintracht Hildesheim, 38-25. Róbert Gunnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Löwen. Magdeburg, sem er í sjötta sætinu, vann Grosswallstadt á heimavelli í kvöld, 27-21. Einar Hólmgeirsson var ekki í leikmannahópi Magdeburg að þessu sinni en Sverre Andreas Jakobsson stóð vaktina í vörn Grosswallstadt. Björgvin Páll Gústavsson sat á bekknum hjá Magdeburg.
Þýski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Fleiri fréttir HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Sjá meira