Beiðni um beina útsendingu frá Landsdómi hafnað Erla Hlynsdóttir skrifar 6. mars 2012 12:16 Geir H. Haarde í Landsdómi í gær. Mynd/Anton Brink
Landsdómur hefur hafnað beiðni fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis, um að að koma fyrir myndavél í dómsal þannig að hægt verði að senda réttarhöldin yfir Geir H. Haarde út í beinni útsendingu. Fréttastofa RÚV fór einnig fram á það við Landsdóm að endurskoðuð verði ákvörðun um að leyfa hvorki hljóðritun né myndatökur í þinghaldi við aðalmeðferðina yfir Geir. Báðar fréttastofur fengu formlegt svar í morgun þar sem þessum beiðnum var hafnað. Vísað er til þess að samkvæmt lögum um meðferð sakamála sé óheimilt að hljóðrita eða taka myndir í þinghaldi, en tekið fram að dómari geti veitt undanþágu frá banninu ef sérstaklega stendur á. Ritari landsdóms undirritar svarbréf til fréttastofu. Þar kemur fram að slík undanþáta hefur ekki áður verið veitt. Þá segir að beiðni fréttastofu hafi borist of seint til að ráðrúm hafi gefist til að fara yfir afstöðu málsaðila til beiðninnar, mögulegar truflanir af útsendingunni fyrir þinghaldið og að tryggja hefði að öðrum fjölmiðlum gæfist sami kostur og þeim sem óskað hafa eftir undanþágunni.
Landsdómur Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Sjá meira