
Nýr Landspítali: Slys aldarinnar?
Rökin fyrir nálægð spítalans við Háskóla Íslands eru óskiljanleg. Einkum með hliðsjón af fjarskiptatækni sem mun þróast æ hraðar á næstu árum og gera mönnum kleift að nota fjarfundabúnað og fjarskipti sem okkur órar varla fyrir. Háskólakennarar á Landspítalanum koma sjaldan í Háskóla Íslands. Þeir kenna á Landspítalanum sjálfum. Sjálfur var ég lektor við læknadeild HÍ í nokkur ár en ég man varla til þess að hafa átt erindi í Háskólann. Kennslan fór fram annars staðar.
Af ummælum stjórnenda byggingaverkefnisins mætti ætla að háskólakennarar á Landspítalanum verði stöðugt hjólandi á milli Landspítalans og Háskólans.
Þetta fræðaþorp með Landspítalann og Háskólann og aðrar fræðastofnanir er að mínu viti ekkert annað en sýndarveruleiki, stórt Lego-þorp sem stórir strákar í draumóraveröld eru að byggja. Rökin fyrir nálægð spítalans við Háskólann eru haldlaus.
Byggðaþróun höfuðborgarsvæðisins á næstu áratugum verður í austur og norður af augljósum landfræðilegum ástæðum. Hugsanlega gæti miðja svæðisins verið í kringum Rauðavatn, Reynisvatn eða enn austar og norðar miðað við Umferðarspá höfuðborgarsvæðisins sem var unnin fyrir Vegagerðina árið 2004.
Hringbrautarstaðsetningin er á þessari framtíðarmynd í jaðri byggðarinnar, fjærst nær allri annarri byggð og fjærst stofnæðum umferðar. Þar sem samgönguæðar eru hvað þrengstar eins og Miklabraut/Hringbraut nema til komi fjöldi mislægra gatnamóta og/eða stokkar undir umferðaræðar eins og Miklubrautina. Fjölgun íbúða fyrir stúdenta á háskólasvæðinu, Harpan, Háskólinn í Reykjavík og fjölgun gistirýma í miðborginni eykur umferðarþunga um Miklubraut/Hringbraut og Bústaðaveg og gerir aðgengið að Hringbrautarsvæðinu enn verra en ella.
Frá því svæði þar sem stofnbrautakerfi höfuðborgarsvæðisins mun mætast og miðja byggðarinnar verða samkvæmt spám getur tími sjúkraflutninga að Vatnsmýrinni skipt verulegu máli. Hver mínúta í sjúkraflutningi getur ráðið úrslitum um horfur sjúklinga sem fluttir eru.
Landspítalinn er og verður spítali allra landsmanna. Staðarval ætti að miðast við aðgengi og umferð fyrir allt landið en ekki einungis höfuðborgarsvæðið. Varðandi valkosti hafa verið nefndir nokkrir staðir á höfuðborgarsvæðinu: Elliðaárósar, Ártúnsholt, Vífilsstaðir, Keldur. Allir þessir staðir eru að mínu mati miklu betri valkostir en Hringbrautarstaðsetningin með hliðsjón af umferð og öryggi sjúklinga. Við ákvörðun staðsetningar ber ekki að horfa til ástandsins í dag, heldur byggðaþróunar næstu áratugina meðan spítalinn á að þjóna landsmönnum öllum.
Staðhæft er af forvígismönnum spítalans að þetta staðarval sé allt of dýrt. Það er ugglaust rétt en það er örugglega dýrara að ráðast í framkvæmdir ef stoðir þeirra eru ekki nógu styrkar frá upphafi og tjaldað til einnar nætur.
Hafa menn ekki dregið þann lærdóm af hruni íslenska fjármálakerfisins að maður eyðir ekki meiru en maður aflar, byggir ekki alltaf fyrir lánsfé? Væri ekki rétt að staldra við, líta til hægri og vinstri áður en gengið er yfir götuna svo forðast megi slys? Gangi viðreisn efnahagslífsins á Íslandi eftir mætti ætla að við værum komin á þokkalega siglingu efnahagslega eftir kannski 5 ár. Ég tel að við ættum að bíða að minnsta kosti þann tíma með byggingu nýs spítala. Á meðan getum við nýtt okkur það húsnæði sem við höfum. Það húsnæði er raunar komið á viðhaldsstig, sem er dýrt, en því húsnæði þyrfti jú hvort eð er að halda við.
Nýr spítali ætti svo þegar efnahagslegar aðstæður leyfa að rísa austan Elliðaárósa þar sem aðgengi að honum er best, umferðaröryggi er tryggt og öryggi og velferð sjúklinga er höfð að leiðarljósi.
Á Landspítalanum í Fossvogi (Borgarspítalanum) hefur öll aðstaða bráðaþjónustu verið stórbætt en þarf eflaust að bæta frekar. Ég tel að unnt sé að sinna allri bráðaþjónustu í Fossvoginum. Spítalinn er tiltölulega vel staðsettur, hann er byggður aðallega á hæðina, sem er kostur að mati margra arkitekta. Flutningur sjúklinga tekur miklu skemmri tíma en um langt og flókið undirgangakerfi eins og á teikningum spítalans við Hringbraut. Við spítalann er þyrlupallur. Með góðri stjórnun og vel skipulagðri verkaskiptingu ætti að vera hægt að reka hér sjúkrahúsþjónustu eins og hún gerðist best fyrir nokkrum árum.
Til viðbótar má geta þess að fyrirtaks aðstaða er fyrir hendi á jaðarsjúkrahúsunum fjórum: Sólvangi í Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Selfossi og á Akranesi. Öll þessi sjúkrahús hafa legurými og eru tækjum búin til þess að stunda svokallaðar valaðgerðir – í stuttu máli aðgerðir aðrar en bráðaaðgerðir svo sem minni bæklunaraðgerðir, kvensjúkdómaaðgerðir, háls-, nef- og eyrnaaðgerðir, lýtaaðgerðir og speglanir.
Spítali sem er sveltur fjárhagslega, þar sem allt viðhald og öll verkefni sitja á hakanum, á ekki að ráðast í nýtt steinsteypuverkefni. Starfsemi spítalans er ekki undir því komin að um hana séu veglegir salir heldur byggist hún á starfsfólkinu sem þar vinnur, mannauðnum. Illu heilli fer mannauðurinn þverrandi, læknar og hjúkrunarfræðingar flytja úr landi og fáir koma heim úr framhaldsnámi. Hverjir munu starfa á hinu „nýja" sjúkrahúsi? Væri ekki nær að hlúa að starfsfólkinu sem heldur spítalanum gangandi, sem hefur fengið að axla þyngri og þyngri byrðar og skert kjör hin síðari ár?
Áformuð bygging Landspítala við Hringbraut er stórslys 21. aldarinnar. Svo mikið stórslys að engin bráðaþjónusta mundi geta ráðið við afleiðingar þess.
Við verðum með öllum ráðum að fyrirbyggja að þetta slys eigi sér stað. Framtíð íslenskrar heilbrigðisþjónustu er í húfi, ekki bara á næstu árum heldur á allri þessari öld.
Skoðun

Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?
Sveinn Ólafsson skrifar

Sama steypan
Ingólfur Sverrisson skrifar

Ofbeldi gagnvart eldra fólki
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar

Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar
Guðbjörg Pálsdóttir skrifar

Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk
Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar

Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni
Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga
Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar

Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Í lífshættu eftir ofbeldi
Jokka G Birnudóttir skrifar

Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við?
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra?
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni
Auður Kjartansdóttir skrifar