Samdi við breskan barnabókarisa 15. júlí 2011 14:15 Birgitta Sif hefur samið við barnabókarisann Walker Books um útgáfu á sögu sinni Oliver. „
Lokasýningin mín frá Anglia Ruskin-háskólanum var í febrúar og eftir hana var mér boðinn samningur," segir Birgitta Sif, sem hefur landað stórum bókasamningi við Walker Books, einn stærsta sjálfstæða barnabókaútgefanda í heimi. Birgitta Sif ólst að mestu upp erlendis, í Danmörku, Svíþjóð og Bandaríkjunum, en dvaldi á Íslandi á sumrin. Hún kláraði framhaldsskólanám í Bandaríkjunum og útskrifaðist með BA-gráðu í teikningu og hönnun frá Cornell University í New York. „Eftir námið fór ég að vinna við uppsetningu á blöðum og tímaritum í New York. Mér fór svo að lítast vel á að hanna barnabækur og byrjaði að spreyta mig sjálf," segir Birgitta, sem ákvað að sækja námskeið í barnabókateikningu við Anglia Ruskin-háskólann í Cambridge. Þegar námskeiðinu lauk héldu útskriftarnemendur lokasýningu á verkum sínum. Þar sýndi Birgitta meðal annars teikningar sínar af sögunni Oliver, sem heillaði starfsmenn Walker Books. „Bókin fjallar um Oliver, lítinn strák sem finnst hann vera öðruvísi. Oliver lendir svo í ýmsum ævintýrum," segir hún. Þetta verður fyrsta bók Birgittu hjá Walker Books og er áætlað að hún komi út á næsta ári, en Birgitta gerði samning um útgáfu tveggja bóka hjá stórfyrirtækinu. Hægt er að skoða teikningar hennar á vefsíðunni www.birgittasif.com. - ka
Lífið Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Lífið samstarf Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira