Þeir Magnús og Jóhann hafa að sjálfsögðu ekki starfað saman sem dúett samfellt í fjörutíu ár, en þeir hafa haldið sambandinu og haldið tónleika og gefið út plötur saman af og til. Þeir hafa samt aldrei samið lög saman. Á Ástin og lífið er jafnvægið fullkomið. Tíu lög eru á hvorum disk eftir Magnús og tíu eftir Jóhann.
Bæði Magnús og Jóhann hafa samið mörg lög sem hafa náð vinsældum í flutningi annarra tónlistarmanna. Við getum nefnt sem dæmi Söknuð sem Vilhjálmur Vilhjálmsson söng, Start-lagið Seinna meir, Í Reykjavíkurborg sem Þú og ég flutti og Ást sem Ragnheiður Gröndal söng. Þeir hafa líka sjálfir sungið marga smelli, bæði saman sem Magnús og Jóhann, með Change og á þeim sólóplötum sem þeir hafa sent frá sér. Ástin og lífið er hugsuð sem lagahöfunda- og söngvaraplata og þess vegna eru þau lög sem þeir sjálfir sungu hér í sinni upprunalegu mynd, en þau sem aðrir gerðu fræg eru endurhljóðrituð, nokkur þeirra sérstaklega fyrir þessa útgáfu.
Þetta þýðir að lög eins og Mary Jane, Yakety Yak Smackety Smack, Ástin og lífið, Álfar, Take Your Time, She‘s Done It Again, Jörðin sem ég ann og Blue Jean Queen eru hér í þeim útgáfum sem allir þekkja, en Söknuður og Seinna meir í nýjum útgáfum. Auk þess eru tvö ný lög, eitt eftir hvorn höfund. Almennt séð er ég mjög fylgjandi því að upprunalegar útgáfur séu notaðar á ferilsplötum af þessu tagi, en sú millileið sem hér er farin kemur mjög vel út og gefur pakkanum sterkari heildarmynd.
Tónlistarlega hafa þeir félagar komið víða við. Einhvers konar þjóðlagapopp er áberandi og misdramatískar ballöður, en þarna er líka tölvupopp frá níunda áratugnum og rokk.
Á heildina litið er þetta frábært safn. Útgáfan er líka glæsileg. Hönnunin er flott og í fjörutíu blaðsíðna bæklingi sem fylgir eru allir textarnir og upplýsingar um hvert lag fyrir sig, auk ljósmynda og skemmtilegs og fræðandi texta um þá félaga eftir Steinar Berg Ísleifsson. Ómissandi pakki fyrir íslenska poppaðdáendur.
Niðurstaða: Glæsileg ferilsplata með tveimur af bestu lagasmiðum Íslandssögunnar.