Kiefer undirbýr nýja sjónvarpsseríu 24. febrúar 2011 15:00 Í góðum málum Kiefer Sutherland leikur í prufuþætti af Touch fyrir Fox-sjónvarpsstöðina sem gæti farið í framleiðslu ef allt gengur að óskum.
Kiefer Sutherland og Charlie Sheen eiga tvennt sameiginlegt. Þeim tókst báðum næstum að rústa ferli sínum með eiturlyfjaneyslu og brennívini og var báðum bjargað af sjónvarpi. Sutherland blés miklu lífi í sinn feril sem Jack Bauer í 24 og Charlie Sheen á fyrir sínum reikningum með þáttaröðinni Two and a Half Men. Nú er Sutherland kominn á kreik með nýjan sjónvarpsþátt sem ber nafnið Touch og er úr smiðju Tim King, sem á heiðurinn af Heroes-æðinu. Um er að ræða svokallaðan „pilot“ eða prufuþátt sem síðar verður að veruleika ef allir eru hrifnir. Touch segir frá presti sem kemst að því að einhverfur og mállaus sonur hans sér fyrir óliðna atburði. Sutherland er um þessar mundir að leika á Broadway í That Championship Season og mun því byrja á þáttaröðinni í maí þegar sýningum lýkur. Sutherland getur ekkert kvartað undan verkefnaleysi því hann leikur stórt hlutverk í nýrri kvikmynd Lars von Trier, Melancholia, og þá er náttúrlega í bígerð kvikmynd um Jack Bauer og hans 24 stundir.
Lífið Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Sjá meira