Þjálfari HSG Blomberg vanmetur ekki Fram Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. febrúar 2011 14:45 Karen Knútsdóttir í leik með Fram.
Í kvöld mæta bikarmeistarar Fram þýska liðinu HSG Blomberg-Lippe í 16-liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa. Leikurinn hefst klukkan 19.00 í íþróttahúsi Fram í Safamýri. Reyndar fara báðir leikir liðanna fram hér á landi en síðari leikurinn, sem telst heimaleikur Fram, fer fram á morgun klukkan 16.00. Fram vann sigur á LC Brühl í 32-liða úrslitum keppninnar en ljóst er að það verður við ramman reip að draga í kvöld enda þýska úrvalsdeildin geysilega sterk. HSG Blomberg-Lippe er stolt bæjarins Blomberg sem er í Lippe-héraði í sambandslandinu Norðurrín-Vestfalíu. Liðið komst aftur upp í þýsku úrvalsdeildina árið 2006 og náði sínum besta árangri þar á síðasta keppnistímbili er liðið hafnaði í fjórða sæti. Liðið átti tvo leikmenn í þýska landsliðinu sem olli miklum vonbrigðum á EM í Danmörku og Noregi í desember síðastliðnum - skyttuna Saskiu Lang og hornamanninn Sabrinu Richter. Lang á reyndar við meiðsli að stríða og ferðaðist því ekki með liðinu til Íslands. Þjálfari liðsins heitir André Fuhr og er 39 ára gamall. Hann reiknar með erfiðum leikjum hér á Íslandi. „En við ætlum að fljúga til Íslands í þeim erindagjörðum að tryggja okkur sæti í fjórðungsúrslitum keppninnar," sagði Fuhr í viðtali á heimasíðu félagsins. „Við höfum skoðað upptökur af leikjum Fram gegn Brühl og mátti sjá að þetta lið er með hættulegar skyttur og spilar afar óvenjulega og óþægilega 5-1 vörn. Ég hef hins vegar trú á því að við búum yfir ákveðnum kostum sem við getum nýtt okkur í þessum leikjum."
Handbolti Mest lesið Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Fleiri fréttir HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Sjá meira