Pavel: Þurfum að lækka væntingarnar í garð KR Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. janúar 2011 16:15 Úrvalslið Iceland Express-deildar karla. Mynd/Stefán
Pavel Ermolinskij var í dag kjörinn besti leikmaður fyrri hluta Iceland Express-deildar karla. Keppni í deildinni hefst á ný eftir jólafrí á fimmtudagskvöldið. „Mér líst vel á það sem er framundan. Ég fer varla að skora meira en ég hef gert út af þessum verðlaunum en það er alltaf gaman að fá viðurkenningar," sagði Pavel. „Deildin í haust hefur verið athyglisverð og mjög jöfn. Liðin hafa verið að vinna hvort annað og þó svo að Snæfell sé efst eins og stendur þá hafa þeir enga yfirburði í deildinni. Það eru enn mörg lið sem geta gert tilkall til titilsins." KR er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Snæfells. Þó getur enn mikið breyst þar til að keppt verður um sjálfan titilinn. Snæfell varð til að mynda í sjötta sæti deildarinnar í fyrra en fór svo alla leið í úrslitakeppninni. „Það verður vonandi eitthvað svipað upp á teningnum hjá KR miðað við stöðuna í dag," sagði hann í léttum dúr. „En það skiptir mestu máli að vera í einu af fjórum efstu sætunum upp á heimavallarrétt að gera í fyrstu umferðinni. En eftir það skiptir það minna máli." „Mér líst ágætlega á mitt lið. Staðan er að vísu ekkert sérstök og við þurfum nú að byrja nýtt ár á núlli og lækka þær væntingar sem gerðar voru til okkar í upphafi tímabilsins. Við trúðum þessu sjálfir en þurfum nú að átta okkur á því að við erum ekki það lið sem allir héldu að við værum - að við myndum fara í gegnum þetta tímabil taplausir og ég veit ekki hvað."
Dominos-deild karla Mest lesið Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Margir orðnir þreyttir á Norðmönnum á HM og halda með Brasilíu Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Fótbolti Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Fótbolti Segja hegðun Paragvæ til skammar Fótbolti Fleiri fréttir Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sjá meira