Füchse Berlin upp fyrir Flensburg - Alexander meiddur? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. nóvember 2011 20:49 Alexander Petersson átti góðan leik fyrir Füchse Berlin í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Alexander Petersson skoraði fimm mörk þegar að lið hans, Füchse Berlin, vann góðan sigur á Flensburg á heimavelli sínum í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 33-30. Þar með höfðu liðin sætaskipti í deildinni og Fücshe Berlin, sem Dagur Sigurðsson þjálfar, er því í fjórða sæti eftir leikinn í kvöld. Liðið er nú með fimmtán stig, fimm stigum á eftir toppliði Kiel sem er með fullt hús stiga eftir tíu umferðir. Alexander virtist meiðast á hné á lokamínútu leiksins og fékk meðhöndlun á hliðarlínunni á meðan leiktíminn rann út. Óvíst er hversu alvarleg meiðslin eru. Heimamenn höfðu undirtökin lengst af í leiknum í kvöld og voru með sex maka forystu í hálfleik, 18-12, en Alexander hafði þá skorað fjögur mörk fyrir Berlínarliðið. Það dró svo hægt og rólega saman með liðunum í seinni hálfleik og náðu gestirnir að minnka muninn í eitt mark þegar tæpar átta mínútur voru til leiksloka. Leikmenn Flensburg freistuðu þess að spila grimman varnarleik síðustu mínúturnar, stundum með því að taka þrjá leikmenn Füchse Berlin úr umferð en án árangurs. Iker Romero var þá sérstaklega öflugur en hann skoraði tíu mörk í leiknum, þar af níu í seinni hálfleik. Hjá Flensburg var Daninn Anders Eggert markahæstur með sjö mörk en þýska stórskyttan Holger Glandorf kom næstur með sex.
Þýski boltinn Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Sjá meira