Elvar Friðriksson til liðs við Hammarby Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. ágúst 2011 12:15 Elvar í leik með Valsmönnum. Mynd/Valli
Handknattleikskappinn Elvar Friðriksson er genginn til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið Hammarby. Elvar skrifaði undir eins árs samning við sænska félagið. Elvar var á mála hjá danska úrvalsdeildarliðinu Lemvig á síðustu leiktíð en spilaði áður með Val. „Kærastan mín er að fara í nám í Upsala þannig að það sem kom til greina var Stokkhólmssvæðið. Ég æfði með Guif sem er mjög gott lið með góða aðstöðu," sagði Elvar í samtali við Vísi. Íslendingarnir Kristján Andrésson og Haukur Andrésson eru hjá Guif. Kristján sem þjálfari en Haukur spilar á miðjunni. „Hammarby frétti af veru minni og gerði mér tilboð. Félagið virðist vera að rétta úr kútnum varðandi fjárhaginn. Það eru ungir og fínir strákar í liðinu," segir Elvar sem hefur glímt við meiðsli á öxl. „Ég meiddist á öxlinni í fyrra og spilaði bara sex leiki í dönsku deildinni í fyrra. Danska deildin er talin sterkari en markmiðið er að koma mér í gang, ná mér í öxlinni," segir Elvar. Hann segir forráðamenn félagsins vita af axlarmeiðslunum og ætli að gefa sér gott svigrúm til þess að hrista meiðslin af sér. Elvar var skoðaður af virtum lækni fyrir skömmu sem telur hann á góðri leið með að jafna sig af meiðslum sínum. „Það er um mánuður þangað til ég get farið að skjóta og um tveir mánuðir þar til ég get farið að spila vörn. Þannig að þetta er á góðri leið. Menn hafa nú lagt skóna á hilluna vegna meiðsla á borð við þessi þannig að ég vona að þetta gangi."
Handbolti Mest lesið Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Fleiri fréttir HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Sjá meira