Skoðun

Hvers vegna samþykkja Icesave?

Jón Sigurðsson skrifar
Ýmsar missagnir eru uppi um Icesave-frumvarpið. Frumvarpið gerir alls ekki ráð fyrir því að allur kostnaðurinn falli á íslenskan almenning. Samningurinn fjallar um greiðslur Innstæðutryggingasjóðs á móti Bretum og Hollendingum annars vegar. Hins vegar fjallar hann um ábyrgð á því að ljúka málinu með greiðslum úr þrotabúi Landsbankans, og með viðbót ef þrotabúið mætir ekki öllum eftirstöðvum. Miðað er við hóflegar vaxtagreiðslur, og sérstök ákvæði tryggja greiðsludreifingu og hóflega greiðslubyrði ef þrotabúið skilar minna en menn gerðu ráð fyrir.

Icesave-málið er viðskiptadeila með mótstæðum hagsmunum og réttindum. Álitamálið er skyldur Íslendinga varðandi lágmarks-innstæðutryggingu, m.a. eftir setningu neyðarlaganna. Talsverð áhætta er í málinu. En hún er ekki aðeins tengd samningi. Áhættan vex um allan helming ef samningi er hafnað. Það er fráleitt að halda að Íslendingar geti hunsað dómsniðurstöðu eftir á. Og þá verður alls ekki aðeins við Breta og Hollendinga eina að eiga.

Allir vita að lagaleg skylda liggur ekki fyrir í þessu máli. Málið snýst ekki um að íslenska ríkið sé sekt um eitthvað, hvað þá þjóðin. En almennt búast menn við þátttöku Íslendinga í uppgjöri og fullnustu, einkum eftir viðræður í nóvember 2008 um svonefnd Brüssel-viðmið og eftir samþykkt Alþingis í desember það ár. Eftir þann aðdraganda verður ekki talið óeðlilegt að menn vænti þátttöku okkar.

Sumir virðast trúa því að með neitun losni þjóðin einfaldlega við málið. En það er sama hvort menn samþykkja eða hafna - eða sitja heima. Málið verður ekki kosið burt. Kostnaðurinn hverfur ekki þótt úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði höfnun. - Og samþykkt Icesave-frumvarpsins felur hreint ekki í sér að tilhæfulausri árás Breta haustið 2008 verði þar með gleymt.

Það verða trúlega ekki fyrst og fremst Bretar eða Hollendingar sem snúast við höfnun Íslendinga, ef sú verður niðurstaðan. Áhrifin verða neikvæð í utanríkisviðskiptum og lánamálum og snerta öll greiðslukjör, lánamat og fjárfestingar um eitthvert skeið. Þetta hefur ekki gerst enn nema í litlum mæli þar eð viðræðum hefur ekki verið slitið.

Auðvitað gremst fólki hvernig þetta mál hefur þróast, en stolt og þykkja eiga ekki við. Þetta er alls óskylt landhelgismálinu. Viðskipta- og greiðsludeilur af svipuðu tagi sem Icesave er hafa oft orðið milli nágrannaríkja og ævinlega er farsælast að ljúka þeim með samningum. Ef þjóðin hafnar frumvarpinu seinkar endurreisn atvinnulífsins og samdráttur, atvinnuleysi og stíf gjaldeyrishöft haldast lengur en ella. Yfirgnæfandi hagsmunir almennings og atvinnulífsins standa til þess að ljúka málinu sem allra fyrst með þessum samningi.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×