Indverjar tapa á fjárfestingum í Kaupþingi 10. mars 2011 08:10
Um 70 indversk fyrirtæki og einstaklingar munu tapa fé sem þeir fjárfestu í Kaupþingi. Á meðal þeirra er ríkisrekni bankinn Bank of Baroda (BoB), stærsta hugbúnaðarfyrirtæki Indlands Tata Consultancy Service Ltd. (TCS) og margir indverskir einstaklingar, að mestu demantakaupmenn og athafnamenn sem búa ekki á Indlandi. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu sem vitnar til forsíðu indverska viðskiptablaðsins Mint, sem er samstarfsaðili The Wall Street Journal á Indlandi. Blaðamenn Mint eru með undir höndum kröfuhafalista sem íslensk stjórnvöld afhentu indversku ríkisstjórninni. Í frétt blaðsins er vitnað í háttsettan mann hjá einni af eftirlitsstofnunum landsins þar sem hann segir að verið sé að rannsaka viðskiptin og hvort það fé sem indversku aðilarnir settu í þau séu afrakstur skattundanskota eða svartamarkaðsbrasks. Heildarkröfur Indverjanna í bú Kaupþings eru um 30 milljónir dala, 3,5 milljarðar króna.
Mest lesið Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Hafði betur eftir að hafa fengið of stór gleraugu í hendurnar Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Fleiri fréttir Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira