Gullkálfurinn í Hollywood 7. október 2010 12:00 Hinn eini sanni gulllkálfur George Clooney er hinn eini sanni gullkálfur í Hollywood. Leið hans upp á topp var hins vegar þyrnum stráð og leikarinn þurfti lengi vel að sætta sig við aukahlutverk í vondum sjónvarpsþáttum og enn verri kvikmyndum.
George Clooney er án nokkurs vafa eini sanni gullkálfurinn í Hollywood. Áhrifameiri leikari og leikstjóri er vandfundinn um þessar mundir í draumaborginni en sjálfur nýtur hann lífsins við Como-vatn á Ítalíu. Nýjasta kvikmynd Clooney, The American, verður frumsýnd hér á landi um helgina. Myndin segir frá leigumorðingjanum Jack sem heldur til á Ítalíu og undirbýr sig fyrir síðasta drápið. En Jack gerir grundvallarmistök, hann vingast við prest og fer á fjörurnar við þokkadís, nokkuð sem gæti afhjúpað hver hann í raun og veru er. Leikstjóri The American er Anton Corbijn en í öðrum hlutverkum er að mestu leyti ítalskir leikarar. Saga Clooney er, þegar á heildina er litið, algjört öskubuskuævintýri. Sagan segir að Clooney hafi búið í skáp á meðan hann var að koma sér á framfæri í Hollywood en það verður að teljast fremur hæpið. Hins vegar er það satt og rétt að Clooney skrapaði botninn í kvikmynda- og sjónvarpsbransanum. Hann fékk hlutverk í kvikmyndum á borð við The Return of the Killer Tomatoes, Predator: The Concert og Red Surf en þar lék hann einmitt á móti eldri systur Michelle Pfeiffer, Dedee Pfeiffer. En hún er hvað þekktust í dag fyrir að vera ansi mikið húðflúruð. Clooney gafst hins vegar ekkert upp, lék meðal annars í ellefu þáttum af Roseanna þar sem hin þéttvöxnu Roseanne Conner og John Goodman voru ansi fyrirferðarmikil. Og þetta reyndist vera hlutskipti leikarans, aukahlutverk í sjónvarpsþáttum og aðalhlutverk í vondum myndum. Hvað það var sem framleiðendur ER sáu í síðustu verkum Clooney veit enginn. Engu að síður var ákveðið að ráða hann í hlutverk Doug Ross, barnalæknisins á bráðavakt sjúkrahúss í Chicago. Hlutverkið gerði Clooney að umtalaðasta og eftirsóttasta piparsveini heims, alvöru stórstjörnu, enda gerði persónan lítið annað en að daðra við hjúkrunarfræðinga og kvenkyns lækna ásamt því að bjarga lífi barna með hetjulegri frammistöðu sem stundum var á skjön við hefðbundnar reglur lækna. Frammistaða Clooney í læknasloppnum vakti um leið áhuga Hollywood á þessum grásprengda leikara. Og honum var meira að segja boðið að leika Leðurblökumanninn. Clooney hefur sagt að það hafi verið versta ákvörðunin sem hann hafi tekið á sínum ferli. „Á einni nóttu hafði mér tekist að eyðileggja eina ástsælustu ofurhetju allra tíma,“ á Clooney að hafa sagt. Myndinni var slátrað og fékk eingöngu 3,5 á imdb.com. The Peacemaker gerði ekki mikið fyrir feril Clooney en árið 1998 hófst gullaldartímabil Clooney fyrir alvöru. Þá ákvað Steven Soderbergh að fá hann í Out of Sight á móti Jennifer Lopez. Persóna Clooney í myndinni er nokkuð lýsandi fyrir þær týpur sem hann hefur leikið síðan þá, töff náungi sem er yfirleitt fastur í einhvers konar gildru og þarf að leysa úr henni til að fanga hjarta fegurðardísar. Clooney hefur náð undraverðum árangri á þeim tólf árum sem liðin eru frá því að Hollywood-ferillinn hófst fyrir alvöru. Hann er í dag einhver áhrifamesta persónan í Hollywood, orð hans eru lög í flestum tilvikum og hann velur verkefnin af kostgæfni. Hann mun allavega ekki leika ofurhetju í þröngum búningi sem berst við Dr. Frosta og eitraða Ivy í bráð. freyrgigja@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Fleiri fréttir Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Sjá meira