Skarphéðinn: Búinn að vera ferskur á bekknum að bíða eftir tækifæri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2010 22:32 Skarphéðinn Freyr Ingason. Mynd/Vilhelm
Skarphéðinn Freyr Ingason hefur lifað tímanna tvenna með KR-ingum og er einn af þeim leikmönnum sem hafa verið með í báðum Íslandsmeistaraliðum félagsins síðustu þrjú ár. Skarphéðinn átti flotta innkomu í KR-liðið í 19 stiga sigri á Snæfelli í Hólminum í kvöld eftir að hafa fengið ekkert að spila í fyrsta leiknum. „Palli sendi mig til Baham-eyja í endurnæringu þannig að ég er búinn að vera ferskur á bekknum að bíða eftir tækifæri. Það voru bara allir tilbúnir í þessum leik. Menn voru ekki tilbúnir að sitja við það sem gerðist í síðasta leik. Það voru allir alveg kolbrjálaðir og við sýndum hvað við getum," sagði Skarphéðinn léttur í leikslok. Það kom honum ekkert á óvart að einvígið hafi byrjað á tveimur stórsigrum á útivelli en Snæfell vann fyrsta leikinn í DHL-höllinni með 18 stigum. „Þetta er búið að gerast í þessum seríunum síðustu ár. Við vorum að vinna þá hérna í þar síðustu viku og við vorum ekkert smeykir um að við gætum ekki unnið þá hérna. Við vorum svekktir með að mæta eins og kerlingar þarna um daginn. Svona verður þetta og það verður hver og einn leikur í þessari seríu óútreiknanlegur. Það er bara það sem gerir þetta skemmtilegt og manni hlakkar núna til að fara á fætur á morgnanna," sagði Skarphéðinn sem var með 7 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar á 16 mínútum í kvöld. „Palli vissi það alveg að hann var ekki að nota okkur neitt að viti í síðasta leik. Við töluðum um það að það yrðu allir að vera tilbúnir því það fengju allir eitthvað. Menn fóru með því hugarfari í leikinn að þeir fengju eitthvað að spila og ákváðu að nýta það," sagði Skarphéðinn.
Dominos-deild karla Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira