Skilanefnd Glitnis stefnir eigendum og stjórnendum bankans

Auk Jóns Ásgeirs, Pálma og Lárusar hefur þeim Rósant Má Torfasyni, Guðnýju Sigurðardóttur og Magnúsi Arngrímssyni verið stefnt en þau starfa öll hjá Íslandsbanka í dag.
Samkvæmt DV hefur rannsókn í þágu kröfuhafa Glitnis meðal annars beinst að samskiptum stjórnenda og lykilstarfsmanna bankans annars vegar og stærstu hluthafa hins vegar. Ætla verði að skilanefndin telji að sönnunargögn sýni fram á skaðabótaskylt tjón. Stærstu hluthafarnir hafi misbeitt aðstöðu sinni til að knýja á um lán eða aðra fyrirgreiðslu bankans í eigin þágu.
Kröfur skilanefndar Glitnis og slitastjórnar verða þingfestar síðar í mánuðinum.
Frétt DV um málið er hægt að lesa hér.
Tengdar fréttir

Ráðherra um Glitnisstefnuna: Hljóta að rannsaka þetta sem sakamál
,,Maður bara nuddar augun og trúir þessu varla,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í viðtali við vefritið Smuguna um mál sexmenninganna sem skilanefnd Glitnis stefndi í gær.

Sakaðir um að hafa misnotað stöðu sína sem hluthafar
Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson misnotuðu aðstöðu sína sem einir af stærstu hluthöfum Glitnis til að hagnast persónulega um tvo milljarða króna. Lárus Welding forstjóri bankans framkvæmdi skipanir þeirra félaga. Þetta kemur fram í stefnu skilanefndar Glitnis á hendur þremenningunum og þremur starfsmönnum Glitnis. Skilanefndin krefst sex milljarða í skaðabætur.

Jón Ásgeir vill frávísun í Glitnismálinu
Jón Ásgeir Jóhannesson segist á engan hátt hafa misnotað aðstöðu sína í bankanum. Hann hyggst fara fram á frávísun á stefnu skilanefndar Glitnis á hendur sér.

Pálmi segir stefnu gegn sér vera tóma þvælu
Pálmi Haraldsson, fyrrum eigandi Fons, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis í dag að það sem kæmi fram í stefnu skilanefndar Glitnis gegn sér væri tóm þvæla.

Yfirmenn hjá Íslandsbanka sendir í leyfi vegna málsóknar
Þrír starfsmenn Íslandsbanka hafa verið sendir í leyfi eftir að hafa verið stefnt af skilanefnd Glitnis vegna sex milljarða króna lánveitingar til félags í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Pálma Haraldssonar, sem voru meðal stærstu hluthafa bankans. Þeim hefur einnig verið stefnt auk Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis.

Lárus Welding harmar að starfsmönnum hafi verið stefnt
Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, segir viðskipti sem stunduð voru gagnvart Pálma Haraldssyni og félagi hans FS38 ehf, hafa verið unnin af fullum heilindum og samkvæmt reglum bankans.

Segir Jón Ásgeir hafa verið einhverskonar yfirbankastjóra Glitnis
„Svo kemur það fram í einum póstinum að hann hóti að verða stjórnarformaður fái hann ekki lánið og verði þar af leiðandi einhversskonar yfirbankastjóri,“ sagði lektorinn Vilhjálmur Bjarnason og hluthafi Glitnis í viðtali við Morgunútvarpið á Rás 2 í morgun.

Pálmi Haraldsson: Beitti ekki blekkingum til þess að fá milljarð
Pálmi Haraldsson, sem hefur verið stefnt af Glitni ásamt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Gltinis, segist ekki hafa beitt blekkingum til þess að fá milljarð lánaðan. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér en þar segir orðrétt: