Handbolti

GUIF vann frábæran útisigur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kristján Andrésson.
Kristján Andrésson.

Lið Kristjáns Andréssonar, GUIF, í sænska handboltanum er komið á topp sænsku úrvalsdeildarinnar eftir sterkan eins marks útisigur, 26-27, á Lugi í kvöld. Lugi er í fjórða sæti deildarinnar.

Bæði GUIF og Savehof eru með 28 stig á toppi deildarinnar en GUIF hefur leikið einum leik meira.

Haukur Andrésson leikur með liði eldri bróður sins sem hefur gert frábæra hluti sem þjálfari í sænska boltanum og vakið mikla athygli á síðustu árum fyrir góðan árangur.

Haukur skoraði 2 mörk í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×