Gillz: „Ég elska konur og hef alltaf gert - mamma mín er kona!“ Valur Grettisson. skrifar 25. október 2010 13:00 Egill Gillzenegger. „
Daginn eftir tók ég færsluna út og baðst afsökunar enda grófur einkahúmor þarna á ferð. Það mál var afgreitt þá og skil ekki tilganginn að vera að rifja þetta upp núna. Mér er líka gróflega misboðið að þessar konur skuli segja að ég hafi verið að hvetja til nauðgana. Að þær skuli lesa það út úr þessum vitleysisgangi er út hött og í raun ekki svaravert," segir Egill Einarsson, oft kallaður Gillzenegger. Ástæðan eru kröftug mótmæli á Facebook og víðar vegna fyrirhugaðs samstarfs Egils við fyrirtækið Já um ritun símaskráarinnar. Um fjögur hundruð manns hafa skráð sig á Facebook-síðuna í mótmælaskyni auk þess sem tæplega þrjúhundruð manns hafa skrifað undir mótmælaskjal á netinu vegna aðkomu Egils að skránni. Meðal þess sem mótmælendur gagnrýna er færsla sem Egill birti á bloggi sínu árið 2007 og fjallaði um feminista. Meðal ummæla eru eftirfarandi: Um feminista: „gefa þessum leiðinda rauðsokkum einn granítharðan". „þessar dömur eru flestallar ógeðslegar auk þess að vera geðsjúklingar." Um Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, þá þingmaður Samfylkingarinnar: „Steinunn (Valdís) er portkona".. „á hana dugar ekkert minna en lágmark tveir harðir." Um Kolbrúnu Halldórsdóttur, þáverandi þingmann Vinstri grænna.: „munu þessir herramenn sem Fréttastofan taldi upp áðan fylla hana eins og hátíðarkalkún." Sjálfur segir Egill um færsluna: „Færslan sem er sýnd á þessar facebook síðu var skrifuð annaðhvort 2006 eða 2007 af nokkrum félögum sem sippuðu kannski í sig full miklu rauðvíni eitt kvöldið. Það var Fréttastofa Gillz sem setti þetta á netið og sú Fréttastofa var grófari en gengur og gerist enda skrifaði Gillz sjálfur aldrei undir þær færslur. Ég ber vissulega ábyrgð á henni en blaðamennirnir á þeirri Fréttastofu höfðu fullt ritstjórnarlegt frelsi." Og Egill bendir á það þurfi ekki að leita langt yfir skammt til þess að finna út að hann sé í raun mikill herramaður og fullkomlega laus við alla kvenfyrirlitningu, „Fólk þarf ekki annað en að lesa metsölubók mína Mannasiðir, horfa á sjónvarpsþættina eða fara á heimasíðu mína Gillz.is til að sjá að það er engin kvenfyrirlitning í gangi. Ég elska konur og hef alltaf gert - mamma mín er kona!" Egill hlakkar til að fara að vinna að símaskránni sem kemur út á næsta ári og lofar sögulegri bók. „Ég get lofað fólki því að í fyrsta skipti í sögu hennar getur fólk rifið forsíðuna af og rammað hana inn upp á vegg. Listaverkið sem verður framan á henni er ólýsanlegt," segir Egill um skránna sem kemur út í maí á næsta ári. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já, sagði í viðtali við Vísi fyrr í dag að allnokkrir hefðu skráð sig úr símaskránni í mótmælaskyni við Egil. Henni þótti þó illa vegið að honum. Þá tók hún fram að margir hefðu einnig lýst yfir ánægju sinni með aðkomu Egils að símaskránni.
Tengdar fréttir Fjögur hundruð mótmæla Gillz vegna símaskráar Hátt í fjögur hundruð manns hafa skráð sig á Facebook-síðu þar sem samstarfi Egils Einarssonar, oft nefndur Gillzenegger, vegna ritun símaskráarinnar er harðlega mótmælt. 25. október 2010 11:20 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Fjögur hundruð mótmæla Gillz vegna símaskráar Hátt í fjögur hundruð manns hafa skráð sig á Facebook-síðu þar sem samstarfi Egils Einarssonar, oft nefndur Gillzenegger, vegna ritun símaskráarinnar er harðlega mótmælt. 25. október 2010 11:20