Nick og Magnús hafa unnið alla upp á líf og dauða leiki saman Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2010 15:45 Nick Bradford í leik með Njarðvík á móti Keflavík. Mynd/Vilhelm
Njarðvíkingarnir Nick Bradford og Magnús Þór Gunnarsson hafa ekki enn ekki tapað saman einvígi í úrslitakeppninni en þeir eru upp við vegginn fræga í kvöld ásamt félögum sínum úr Njarðvíkurliðinu í annað skiptið á þremur dögum. Fjórði leikurinn fer fram í Njarðvík klukkan 19.15 í kvöld og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þeir Nick og Magnús hafa fyrir löngu sannað sig sem mikla sigurvegara en þetta er áttunda einvígið sem Nick og Magnús eru í hlið við hlið í úrslitakeppni og þeirra lið hafa unnið fyrstu sjö. Þetta er líka langt frá því að vera í fyrsta skiptið sem þeir spila leik saman upp á líf eða dauða í úrslitakeppni en þá er átt við leiki þar sem tap þýðir að tímabilið er búið. Lið með Nick og Magnús innanborðs hefur unnið alls sex slíka leiki hingað til þar á meðal 88-86 sigur í Keflavík á sunnudagskvöldið þar sem að þeir félagar voru saman með 40 stig. Njarðvíkingar verða á treysta á þessa miklu sigurvegara í leiknum í Ljónagryfjunni í kvöld þar sem tap þýðir sumarfrí en sigur tryggir liðinu oddaleik í Keflavík á fimmtudagskvöldið. "Upp á líf og dauða" leikir Nick Bradford og Magnúsar Þórs Gunnarssonar í úrslitakeppni: Undanúrslit 2010 með Njarðvík (Keflavík 2-0 yfir og getur komist áfram)88-86 sigur í Keflavík Nick Bradford 20 stig, 5 fráköst, 4 stoðsendingar Magnús Þór Gunnarsson 20 stig, 4 þristar, hitti úr 8 af 9 vítum8 liða úrslit 2010 með Njarðvík (oddaleikur á móti Stjörnunni, staðan er 1-1)88-72 sigur í Garðabæ Nick Bradford 13 stig, 5 stoðsendingar Magnús Þór Gunnarsson 20 stig, 6 þristar8 liða úrslit 2005 með Keflavík (oddaleikur á móti Grindavík, staðan er 1-1)80-75 sigur í Keflavík Nick Bradford 29 stig, 16 fráköst, 6 stoðsendingar Magnús Þór Gunnarsson 9 stigUndanúrslit 2004 með Keflavík (oddaleikur á móti Grindavík, staðan er 2-2)101-89 sigur í Grindavík Nick Bradford 31 stig, 9 fráköst, 8 stoðsendingar Magnús Þór Gunnarsson 11 stig, 4 stoðsendingarUndanúrslit 2004 með Keflavík (Grindavík er 2-1 yfir og getur komist áfram)124-76 sigur í Keflavík Nick Bradford 27 stig, 8 fráköst, 7 stoðsendingar Magnús Þór Gunnarsson 10 stig á 14 mínútum8 liða úrslit 2004 með Keflavík (oddaleikur á móti Tindastól, staðan er 1-1)98-96 sigur í Keflavík Nick Bradford 24 stig Magnús Þór Gunnarsson 4 stig
Dominos-deild karla Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Sjá meira