Bárður: Ætli þetta ráðist ekki bara á síðasta skotinu í leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2010 10:00 Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis. Mynd/Stefán
KR og Snæfell leika í kvöld hreinan úrslitaleik um sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta. Vísir fékk Bárð Eyþórsson, þjálfara Fjölnis til þess að spá í leik kvöldsins sem hefst klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. „Ég treysti mér ekki til að spá fyrir um sigurvegara en ég vona að Snæfell vinni," sagði Bárður Eyþórsson. „Snæfellingar þurfa að halda Brynjari áfram frá því að skora og þeir þurfa að reyna að hægja einhvern veginn á Morgan Lewis. Þeir þurfa gera betur í að hægja á honum þannig að hann sé ekki með svona góða skotnýtingu eins og hann hefur verið með. Tommy Johnson kemur líka þarna inn og þeir þurfa að halda honum áfram út úr þessu," segir Bárður. „Snæfell þarf að reyna að halda Tommy Johnson á þeim stað sem hann er á með núll af eitthvað í skotum. Það er greinilega einhver pirringur hjá KR-ingum út í hann og Snæfell þarf að reyna að viðhalda því," segir Bárður. „Þeir þurfa líka að halda áfram að halda boltanum frá Pavel eins og þeir hafa gert. Þeir hafa gert það mjög vel í leikjunum í DHL-höllinni," segir Bárður. „Það yrði stórkostlegt afrek fyrir Hólmarana að ná að vinna í þriðja skiptið í röð í DHl-höllinni. KR er á heimavelli og það verður pakkað og því hljóta þeir að teljast vera sigurstranglegri. Það þó að þeir séu búnir að tapa tvisvar fyrir Snæfelli þarna," segir Bárður og bætir við: „Ætli þetta ráðist ekki bara á síðasta skotinu í leiknum, tveimur sekúndum fyrir leikslok. Það á síðan eftir að koma í ljós hvort liðið það verður sem fagnar sigri," sagði Bárður að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira