Gengi hlutabréfa Bakkavarar hækkaði um 3,33 prósent í Kauphöllinni í dag. Þá hækkaði gengi bréfa Marel um 1,28 prósent og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,27 prósent.
Á sama tíma lækkaði gengi hlutabréfa Century Aluminum um 0,71 prósent.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,81 prósent og endaði í 953 stigum.