Handbolti

Andri hafði betur í Íslendingaslagnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Andri Stefan Guðrúnarson í leik með Haukum.
Andri Stefan Guðrúnarson í leik með Haukum. Mynd/Ole Nielsen

Andri Stefan skoraði fjögur mörk þegar að Fyllingen vann sigur á Haugaland, 32-25, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Ólafur Haukur Gíslason er á mála hjá Haugaland og varði alls tíu skot í leiknum.

Fyllingen er í öðru sæti deildarinnar með fjórtán stig eftir tíu leiki, þremur stigum á eftir toppliði Drammen.

Haugaland er hins vegar í ellefta og næstneðsta sæti með einungis þrjú stig eftir níu leiki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×