Birkir Jón Jónsson varaformaður Framsóknarflokksins og Höskuldur Þórhallsson þingmaður vilja báðir leiða framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi. Undanfarin ár hefur Valgerður Sverrisdóttir verið oddviti flokksins í kjördæminu en hún tilkynnti nýverið að hún sækist ekki eftir endurkjöri.
Birkir Jón var fyrst kjörinn á þing vorið 2003 og hann tók við sem varaformaður á landsþingi flokksins í janúar síðastliðnum. Höskuldur tók sæti á Alþingi eftir kosningarnar 2007. Hann sóttist eftir formennsku í flokknum en tapaði naumlega fyrir Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni á landsþinginu í seinasta mánuði.
Sextán frambjóðendur hafa gefið kost á sér til framboðs í kjör um átta efstu sæti framboðslista Framsóknarflokksins í kjördæminu vegna alþingiskosninganna í vor. Frestur til að skila inn framboðum rann út á föstudaginn.
Kosið verður um 1. til 8. sæti á framboðslista framsóknarmanna á kjördæmisþingi sem haldið verður 15. mars 2009. Atkvæðisrétt á því þingi munu allir flokksbundnir framsóknarmenn í Norðausturkjördæmi hafa í stað þess að valdir séu fulltrúar miðað við tiltekinn félagsmannafjölda hvers aðildarfélags, líkt og gerist á reglulegum kjördæmisþingum.
Frambjóðendurnir skiptast í 6 konur og 10 karla, yngsti frambjóðandinn er 19 ára en sá elsti 63 ára.
Eftirtaldir skipa hópinn:
Anna Kolbrún Árnadóttir, sérkennari, 1.- 8. sæti
Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, 1.sæti
Höskuldur Þ Þórhallsson, alþingismaður, 1. sæti
Áskell Einarsson, bóndi, 2.- 8. sæti
Eva Ásrún Albertsdóttir, ljósmóðir og dagskrárgerðarmaður, 2.- 3. sæti
Huld Aðalbjarnardóttir menningar-og fræðslufulltrúi Norðurþings, 2.- 3. sæti
Hólmar Örn Finnsson, viðskiptalögfræðingur, 2.- 4. sæti
Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri, 2.- 4. sæti
Hallveig Björk Höskuldsdóttir, leiðtogi í málmvinnslu Alcoa, 4. sæti
Bernharð Arnarsson, bóndi, 5.- 8. sæti
Gunnar Þór Sigbjörnsson, þjónustustjóri, 5. sæti
Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjálfi, 5. sæti
Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi og tamningamaður, 5. sæti
Eiður Ragnarsson, starfsmaður í málmvinnslu Alcoa, 7.- 8. sæti
Hafþór Eide Hafþórsson, nemi, 7.- 8. sæti
Heiða Hilmarsdóttir, skrifstofustjóri hjá Sölku - Fiskmiðlun, 7.- 8. sæti
Birkir og Höskuldur takast á um sæti Valgerðar
