Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um 8,82 prósent í Kauphöllinni í gær. Á eftir fylgdi Straumur, sem féll um 5,7 prósent, Marel Food Systems, sem fór niður um 5,26 prósent, og gengi bréfa í Færeyjabanka, sem féll um 3,46 prósent. Þá lækkaði gengi bréfa í Bakkavör um 0,48 prósent.
Á sama tíma hækkaði gengi bréfa í Össuri um 0,21 prósent.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,94 prósent og stendur hún í 315 stigum.