Handbolti

Kiel mætir Gummersbach í bikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Róbert Gunnarsson í leik með Gummersbach gegn Kiel í maí síðastliðnum.
Róbert Gunnarsson í leik með Gummersbach gegn Kiel í maí síðastliðnum. Nordic Photos / Bongarts

Dregið var í fjórðungsúrslit þýsku bikarkeppninnar í handbolta í dag. Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, mætir sínu gamla liði, Gummersbach.

Aron Pálmarsson leikur með Kiel og Róbert Gunnarsson með Gummersbach en Alfreð var þjálfari síðarnefnda liðsins áður en hann fór til Kiel.

Íslendingaliðið Rhein-Neckar Löwen mætir Göppingen en með fyrrnefnda liðinu leika þeir Ólafur Stefánsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson.

Þórir Ólafsson, Heiðmar Felixsson og félagar í TuS N-Lübbecke leika við neðrideildarliðið Bergischer HC og þá mætir Hamburg liði Bad Schwartau.

Leikirnir fara fram 6. og 7. febrúar næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×